búvörulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni ræðuna. Ég ætla aðeins að hinkra með spurninguna til hv. þingmanns, það er verið að ljúka hér fyrra andsvari til hliðar. En aftur ítreka ég þakkir fyrir ágæta ræðu þótt ég sé henni kannski ekki sammála að öllu leyti eða mörgu. Nú er augljóslega búið að samþykkja þetta mál í gegnum ríkisstjórn og þingflokka stjórnarflokkanna og ég sé hér í engu getið í 6. lið greinargerðar, um mat á áhrifum, mögulegra áhrifa á skaðabótamál sem hugsanlega kunna að myndast, snúi Hæstiréttur margræddum héraðsdómi við í meðferð sinni. Þannig að mig langar að spyrja hv. þingmann hvort þau sjónarmið hafi eitthvað verið rædd á þeirri vegferð að mál þetta fór í gegnum stjórnarflokkana, af því að þess er, eins og ég segi, í engu getið í áhrifamati frumvarpsins.
Hér segir beinlínis, með leyfi forseta:
„Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun það ekki kalla á aukin útgjöld ríkissjóðs.“
Lögfróðir segja mér að líkur séu á því að snúi Hæstiréttur dómi héraðsdóms þá geri það stöðu ríkisins umtalsvert verri en annars væri hvað mögulegt yfirvofandi skaðabótamál varðar af hendi þeirra sem eru undirorpnir því tiltekna máli og áhrifum sem þessi löggjöf kann að kalla fram verði hún samþykkt fyrir þann tíma.