156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[16:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og áhugavert, ef ég reyni að lesa á milli línanna og þarf þess nú varla, að þetta virðist í engu hafa verið rætt eða kynnt þegar málið fór í gegnum þingflokka stjórnarflokkanna, því að þetta er þeirrar gerðar að annaðhvort er þetta greint og tekið á því eða ekki. Og af því að hæstv. ráðherra er ekki hér í hliðarsölum, sýnist mér, þá gæti nú orðið þröngt um fyrir mig að spyrja hæstv. ráðherra út í akkúrat þetta. En sjáum til hvað verður fyrir nefndinni þar sem fulltrúi Miðflokksins og fleiri verða eflaust tilbúnir með spurningar.

Það eru kannski ekki frekari spurningar að öðru leyti en bara svona um staðfestinguna á því að þetta hafi ekki verið hluti þess sem kynnt var fyrir þingflokkunum. Mér þykir þetta skipta raunverulegu máli því að það er sérstaklega tilgreint að verði frumvarpið óbreytt að lögum muni það ekki kalla á aukin útgjöld ríkissjóðs. Ef menn líta með opnum augum fram hjá þeim áhrifum sem þetta frumvarp kann, að því samþykktu, að hafa á mögulega skaðabótaskyldu ríkisins — og það er auðvitað þannig að holt og bolt þá gerir löggjafarvaldið upp að ákveðnu marki það sem því sýnist. Það er auðvitað alveg ljóst að rétturinn er til staðar til að gera þessa breytingu þegar meiri hlutinn telur rétt að knýja hana í gegn en það hlýtur að koma til sérstakrar skoðunar, þegar svo stutt er í niðurstöðu Hæstaréttar sem raunin er hvað þetta mál varðar, að flýta sér að einhverju marki hægt.

Þá langar mig bara að spyrja hæstv. hv. þingmann hvort hann og mögulega þingflokkur Viðreisnar, með það í huga að hv. þingmaður er þingflokksformaður, sjái fyrir sér að skynsamlegt sé mögulega að leyfa meðferð málsins að vera í gangi hér í þinginu fram yfir þann tímapunkt að Hæstiréttur hefur komist að sinni niðurstöðu, verði matið það að þetta gæti eitt og sér haft áhrif á skaðabótaskyldu ríkissjóðs.