156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[16:47]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst þetta svolítið áhugaverð umræða. Það er auðvitað þannig að þingið getur gert ansi mikið þegar kemur að lagasetningu en það er alveg augljóst af héraðsdómnum að vald þingsins fer ekkert umfram það sem stjórnarskráin leyfir. Við erum, held ég, alveg nákvæmlega sammála um það. Ég hefði fagnað þessum miklu áhyggjum af afleiðingum lagasetningar hjá hv. þingmanni ef hann hefði dregið vagninn með okkur hér þegar við vorum að vara við þeim breytingum sem hér voru gerðar og eru til umfjöllunar einmitt núna fyrir dómstólum. Það hefði nú verið góður liðsauki í þeirri baráttu að fá þingflokksformann Miðflokksins með í það.

Ég get auðvitað ekki svarað fyrir atvinnuveganefnd um það hvernig hún ætlar að haga sinni vinnu. Það eru fjölmörg mál að koma inn í atvinnuveganefnd og hvernig vinnst úr því nákvæmlega veit ég ekki. Ég treysti mér ekkert til að svara fyrir um það. Ég sit ekki í atvinnuveganefnd og við verðum bara að leyfa nefndinni að vinna þetta mál samhliða öðrum málum og hversu fljótt það gerist, það veit auðvitað ekkert okkar. Það getur farið eftir svo mörgum hlutum, t.d. álagi út af öðrum málum í nefndinni og allt þar fram eftir götunum.

Það sem ég var að vísa í hér áðan, ég var nú bara að vísa í það að ég held að hv. þingmaður fengi betra svar frá atvinnuvegaráðherranum heldur en þeim sem hér stendur um þetta tiltekna atriði og ég minni á það, öfugt við það sem var þegar lögin sem hér eru til umræðu í dómstólum voru samþykkt, að hér erum við að fara í eðlilega þinglega meðferð þar sem öllum þessum spurningum verður mögulegt að svara. Það verður hægt að kalla til gesti, ráðherrann kemur, hagaðilar koma, þingið tekur sér tíma í að gera þetta samkvæmt því sem stjórnarskráin leyfir. Það er auðvitað munurinn á þessu frumvarpi sem við erum að leggja fram hér og því sem gerðist þegar samkeppnislögunum var kippt úr sambandi eins og nú er verið að leiða til lykta fyrir dómstólum.

Ég ætla ekki að svara fyrir atvinnuveganefnd, það verður auðvitað bara að koma í ljós hversu vel þetta vinnst hjá nefndinni, en ég vona satt best að segja innilega að þetta mál verði að lögum.