156. löggjafarþing — 12. fundur,  6. mars 2025.

búvörulög.

107. mál
[16:49]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Virðulegi forseti. Hér liggur fyrir frumvarp til breytinga á búvörulögum. Frumvarpið er einfalt, einfaldlega fjórar greinar án skýringa við hverja einstaka grein eins og venja er til þegar lagafrumvörp eru lögð fram. Það er ólíkt öðrum frumvörpum að þessu leytinu til, það er ekki verið að skýra út eina einustu af þessum fjórum greinum sem frumvarpið hljóðar upp á. Og hvernig hljóða þessar greinar, frú forseti? Þar er verið að fella út nokkrar greinar búvörulaganna, einfaldlega allar þær greinar sem samþykktar voru með lögum nr. 30/2024. Það er sem sagt verið að fella niður síðustu breytingu á búvörulögum.

Það er kannski tilviljun að einmitt vegna þeirrar lagasetningar, þ.e. lagasetningarinnar frá því í fyrra, gekk dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur 18. nóvember síðastliðinn þar sem talið var að umrædd breyting búvörulaga, og þar með setning laga nr. 30/2024, hafi strítt gegn ákvæðum 44. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands sem segir fyrir um að ekkert lagafrumvarp megi samþykkja á Alþingi okkar Íslendinga nema það hafi verið rætt við þrjár umræður. Þetta er ákvæði stjórnarskrárinnar. Héraðsdómur taldi að lagafrumvarpið sem var sett hér síðastliðið vor fyrir ári síðan hafi breyst svo mikið á milli 1. og 2. og 3. umræðu að hann kemst að þeirri niðurstöðu að lögin hafi ekki verið sett á stjórnskipulegan hátt. Þetta er auðvitað, frú forseti, mjög áhugavert stjórnskipulegt umræðuefni og úrlausnarefni. Dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember hefur nú verið skotið til Hæstaréttar sem mun taka málið fyrir síðar í þessum mánuði. Rétturinn tók þá ákvörðun að taka áfrýjun málsins beint fyrir í réttinum með þeim rökstuðningi að dómur í því geti haft fordæmisgildi og verulega almenna þýðingu, m.a. um túlkun á 44. gr. stjórnarskrárinnar og endurskoðunarvald dómstóla varðandi stjórnskipulegt gildi laga. Ég er hjartanlega sammála þeim röksemdum. Það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir okkur hér á þinginu, af því að við erum að setja lög alla daga og með tilliti til stjórnarskrárinnar að það þurfi þrjár umræður fyrir hvert frumvarp; þá er mikilvægt að vita það og fá einhverja leiðsögn um það frá Hæstarétti hversu mikið megi hugsanlega breyta frumvörpum á milli umræðna til að þau verði talin gild, hversu mikið það megi vera. Ég tel því mjög mikilvægt lögfræðilega séð og mjög mikilvægt að fá álit Hæstaréttar á því úrlausnarefni, ekki síst vegna þess, frú forseti, að Hæstiréttur er nú einu sinni fjölskipaður dómstóll, ólíkt því sem má segja um héraðsdómstólana þar sem það er yfirleitt bara einn dómari sem kveður upp dóma í hverju máli, eins og í þessu tilviki.

Stjórnvöld nota tækifærið núna til að kasta út þessum lagabreytingum því frumvarpið fjallar bara um þessa lagabreytingu, engar aðrar, þannig að lögunum frá 2024 er kastað út í heilu lagi, þessum lagabreytingum sem voru þrjár greinar. Þessum lagabreytingum er kastað út vegna þessarar óvissu sem er í réttarkerfinu og til að koma þannig í veg fyrir að úr málinu verði skorið í Hæstarétti.

Þetta minnir mig óneitanlega á, frú forseti, eitt fordæmi fyrir svona vinnubrögðum sem átti sér stað fyrir 20 árum. Þá tók þáverandi ríkisstjórn út lög áður en til þess kom að forseti lýðveldisins setti þau í þjóðaratkvæði. Þarna er ég að vísa í fjölmiðlalögin. Þetta er svona svipuð aðgerð. Lögunum er kippt úr sambandi áður en til þess kemur að um þau verði fjallað, í þessu tilviki á vettvangi Hæstaréttar og í hinu tilvikinu á vettvangi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta minnir mig svolítið á það.

Við þessa umræðu hefur hæstv. ráðherra lýst því yfir að þetta frumvarp sé ótengt málsmeðferðinni fyrir Hæstarétti. Það er auðvitað mjög athyglisvert vegna þess að frumvarpið fjallar ekki um neitt nema einmitt þær greinar sem voru settar þarna í fyrra og héraðsdómur hefur talið að færu í bága við stjórnarskrána. Þessi fullyrðing hæstv. ráðherra fær ekki nokkurn trúverðugleika í ljósi forsögu þessa máls sem ég hef farið hér yfir.

Frú forseti. Um hvað fjallar þetta efnislega? Í 1. gr. er lagt til að III. kafli laganna verði felldur brott, þ.e. kafli sem var settur inn í fyrra, sem fjallar um að fyrstu framleiðendur kjötafurða og afleiddra afurða geti stofnað með sér framleiðendafélög. Í 2. gr. er felld brott 71. gr. A laganna sem fjallar um það sem er auðvitað aðalatriðið í þessu, en þar segir: „Þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga er framleiðendafélögum skv. 5. gr. heimilt að sameinast“ og þau mega hafa með sér samstarf. Þarna er verið að kippa úr sambandi samkeppnislögum hvað þetta varðar. Þó eru, frú forseti, í 2. mgr. nokkrir fyrirvarar á þessu þar sem samkeppnislögin muni gilda um tiltekna þætti í þessu sambandi. Þessu öllu er ríkisstjórnin núna að henda út einmitt fimm mínútum í dóm Hæstaréttar í málinu.

Út á hvað gekk þessi breyting með lögum nr. 30/2024? Hún gekk út á það að færa framleiðendur kjötafurða á svipaðan stað og framleiðendur mjólkurafurða hafa verið alveg síðan 2004. Það er verið að færa þá á sama stað. Hver er staða mjólkurframleiðenda samanborið við kjötframleiðendur? Hún er gerólík. Það er á allra vitorði sem hafa fylgst eitthvað með landbúnaði að mjólkurframleiðendur hafa miklum mun betri afkomu en kjötframleiðendur, ekki hvað síst sauðfjárframleiðendur. Nú ætlar ríkisstjórnin sem sagt að henda þessu út. Hún vill ekki að kjötframleiðendur séu á svipuðum stað, sitji við sama borð og mjólkurframleiðendur. Þau tala um að það þurfi að vera samkeppni o.s.frv. Þá vil ég bara aðeins koma að stuðningi og samkeppnisumhverfi landbúnaðar yfirleitt í nágrannalöndunum. Samkeppnislög gilda að mjög takmörkuðu leyti hvað varðar landbúnað í öllum þessum þjóðríkjum, á Norðurlöndunum og í Evrópusambandinu.

Ég fletti nú upp örlitlu um Evrópusambandið hvað varðar landbúnað og ætla aðeins að rifja það upp. Hver er stuðningur Evrópusambandsins við landbúnað og hvert er markmið landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins í landbúnaði? Markmið Evrópusambandsins hvað varðar landbúnað eru að auka framleiðni, tryggja lífskjör í dreifbýli, tryggja stöðugleika á mörkuðum, tryggja framboð á matvöru og tryggja viðunandi verð til neytanda. Hvernig gera þeir þetta? Þeir undanþiggja landbúnað samkeppnisreglum í sáttmála um starfshætti Evrópusambandsins. Og með hvaða hætti, frú forseti? Ég ætla bara að nefna nokkur atriði. Í fyrsta lagi eru það beinar greiðslur eða tekjustuðningur til framleiðenda. Í öðru lagi sérstakur dreifbýlisstuðningur. Í þriðja lagi heimild til uppkaupa landbúnaðarvöru til að halda uppi verði og skapa eftirspurn. Í fjórða lagi stuðningur við kostnað á birgðahaldi. Í fimmta lagi ýmiss konar tollvernd.

Allur þessi stuðningur og með samkeppnisundanþágu er stundaður í öllum þessum löndum. En við ætlum að gera þetta einhvern veginn allt öðruvísi hér, helst að opna hér á innflutning sem hefur náttúrlega aukist verulega síðustu árin, og gera bændum þar með illkleift að framleiða þessa vöru. Það er auðvitað stórvarasamt hvað varðar öryggi þjóðarinnar, ekki síst á tímum eins og núna þegar ýmis vá steðjar að. Það er auðvitað alveg nauðsynlegt að styðja við bændur, það er nauðsynlegt að tryggja fæðuöryggi og matvælaöryggi í landinu þannig að við getum verið sjálfum okkur nóg ef eitthvert slíkt ástand verður, vegna þess að svona ástand hefur oft orðið. Þetta hefur oft gerst, bara á síðustu árum. Hvernig var þetta í hruninu? Menn voru dauðhræddir um að hingað væri ekki hægt að flytja nokkrar einustu vörur, við fengjum bara ekki neitt keypt. Þá hefðum við þurft að lifa á okkar eigin afurðum, okkar eigin framleiðslu. Hvernig var þetta í Eyjafjallagosinu þegar ekki var hægt að fljúga hingað? Þá urðu menn, að vísu ekki í mjög langan tíma, dauðhræddir um þetta sama. Hvernig var þetta í Covid eða í fuglaflensu, svínaflensu og öllu slíku? Menn fengu allt í einu þennan ljóta grun um að við yrðum kannski að sjá svolítið um okkur sjálf og þá er eins gott að við höfum hér í landinu sómasamlega framleiðslu á matvörum.

Ég ætla nú kannski ekki að hafa þetta mikið lengra, frú forseti, ég ætlaði aðeins að fjalla um frumvarpið en ég var búinn að nefna það að það er ekkert verið að útskýra einstakar greinar frumvarpsins eins og vant er og ég sakna þess. Einnig hefur auðvitað ekki verið skýrt út hver er þörfin á þessu frumvarpi. Það hefur farið svolítið á milli mála hversu brýn þörf er á að koma með þetta núna rétt áður en Hæstiréttur kemur með sína niðurstöðu. Ef Hæstiréttur staðfestir héraðsdóm þá er það raunverulega sama niðurstaðan og ef þetta frumvarp verður samþykkt, þ.e. að lögin væru að engu hafandi eins og þetta frumvarp gerir ráð fyrir. Ef Hæstiréttur snýr hins vegar héraðsdómi og telur að þetta hafi verið forsvaranleg vinnubrögð hér á þingi þegar þessi lög voru samþykkt hér í fyrra þá erum við í þeirri stöðu, nákvæmlega þeirri stöðu sem ríkisstjórnin sjálf er búin að segja og fullyrðir að hún ætli sér, þ.e. að hún vilji koma með frumvarp í haust og ætli að koma með breytingar á þessum lögum og einhverjar lagfæringar. Við erum bara í nákvæmlega sömu stöðu, alveg sama hvora leiðina Hæstiréttur velur. Við erum í sömu stöðu og ríkisstjórnin er raunverulega að reyna að telja okkur trú um að hún sé í; ástæða þess að þetta mál sé lagt fram hér og eigi helst að klára áður en Hæstiréttur fjallar um þetta er því mjög ótrúverðug, frú forseti.

Ég sakna þess einnig að það er ekki nægilega gerð grein fyrir mati á áhrifum þessara breytinga. Það er í algeru skötulíki, frú forseti, í þessu frumvarpi hver áhrifin eru af þessu frumvarpi, verði það að lögum. Það stendur hérna, með leyfi forseta:

„Talið er að áhrif þeirra breytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu hafi lítil sem engin áhrif á stöðu kynjanna. Ekki þótti ástæða til að framkvæma sérstakt jafnréttismat.“

Já, það er mjög nauðsynlegt að hafa þetta hér og gott að vita.