búvörulög.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þá ágætu umræðu sem hér hefur átt sér stað. Ég tel að þetta frumvarp sé nú kannski komið helst til snemma fram á þessu þingi í ljósi þess að Hæstiréttur er með mál, er varðar þau lög sem hér eru undir, til meðferðar og sitt sýnist hverjum um rökstuðning héraðsdóms í þeim dómi sem féll fyrir ekki löngu. Margt af því sem ég hafði ætlað mér að koma hér inn á er nú þegar komið fram í umræðunni í dag þannig að ég ætla ekki að lengja umræðuna sérstaklega. En það eru nokkur atriði sem ég vil þó sérstaklega hnykkja á og sem ég vil óska eftir að komist sérstaklega til umfjöllunar í hv. atvinnuveganefnd.
Eitt þeirra atriða varðar aðkomu ríkislögmanns. Það vekur auðvitað athygli hvers vegna ríkislögmaður er ekki hluti af þeim málsaðilum sem eru á dagskrá Hæstaréttar í ljósi þess að málið snýst um grundvallaratriði lagasetningar. Aðkoma ríkislögmanns á fyrri stigum var mjög skýr og ríkislögmaður óskaði eftir heimild til þess á sínum tíma að áfrýja dómi héraðsdóms beint til Hæstaréttar. Aðkoma ríkislögmanns var því eins skýr og hún mögulega getur verið. Þá hlýtur að vakna sú spurning: Hvers vegna kemur ríkislögmaður ekki að málinu núna? Gaf ráðherra ríkislögmanni þau fyrirmæli að hætta afskiptum af málinu? Þetta er atriði sem verður að fást botn í. Það er auðvitað mjög sérstakt ef sú ákvörðun hefur verið tekin og sérstaklega í ljósi þess að það mál sem hér liggur fyrir og rætt er um í dag getur haft áhrif á stöðu ríkissjóðs hvað varðar mögulegar skaðabætur ef Hæstiréttur snýr við dómi héraðsdóms. Það var þannig að allir sem óskuðu eftir að áfrýja dómi héraðsdóms beint til Hæstaréttar fengu synjun um það en var leiðbeint um að sækja um leyfi til meðalgöngu og allir aðilar gerðu það fyrir utan ríkislögmann. Það er eitthvað skrýtið við það, svo að ég segi það nú bara alveg eins og er. Það verður áhugavert að heyra útskýringar á því fyrir hv. atvinnuveganefnd.
Í andsvari við hv. þm. Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar, spurði ég út í áhrifamat greinargerðar frumvarpsins þar sem sérstaklega er tilgreint, með leyfi forseta:„Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun það ekki kalla á aukin útgjöld ríkissjóðs.“ Það er bara alls ekki víst að það sé staðan. Ef við horfum á áhrif mögulegs dóms Hæstaréttar, kjósi rétturinn að snúa við dómi héraðsdóms, þá þarf ekkert að velkjast í vafa um að skaðabótaskylda hefur skapast hjá málsaðilum, a.m.k. öðrum megin borðsins. Það vekur því undrun mína að slíkt mat sé ekki í neinu hér í greinargerð frumvarpsins. Það er auðvitað þannig að löggjafarvaldið getur gefið sér býsna rúmt svigrúm til lagasetningar og á meðan við rekum ekki hornin í stjórnarskrána þá er það verulega mikið. Það breytir því ekki að það er einhver áhættuhegðun í því fólgin að fara hér fram með mál sem þetta sem stígur inn í það mál sem nú er til meðferðar hjá Hæstarétti Íslands og er að mörgu leyti grundvallað á niðurstöðu héraðsdóms sem liggur fyrir og við hér í þinginu þekkjum. Það má segja að texti frumvarps greinargerðarinnar sé býsna beittur í þeim efnum þannig að málið er að mörgu leyti fallið verði niðurstaða Hæstaréttar önnur en héraðsdóms. Mér er því alveg fyrirmunað að skilja þennan asa á þessu tiltekna máli. Ég held að það hljóti að verða niðurstaða í hv. atvinnuveganefnd, þar sem ég á sæti ásamt fleiri góðum þingmönnum, að nefndin flýti sér hægt hvað afgreiðslu málsins varðar og láti lúkningu málsins í öllu falli dragast, ef ég leyfi mér að orða það svo, fram yfir þann tíma að niðurstaða Hæstaréttar er fengin. Annað væri áhættuhegðun sem er ekki boðleg hvað þau verkefni sem við höndlum með hér í þinginu varðar.
Almennt hvað breiðu línurnar varðar þá held ég að enginn velkist í vafa í dag um mikilvægi þess að bændur og afurðastöðvar geti haft með sér meira samráð og sérstaklega meira samstarf en raunin hefur verið. Það er auðvitað ótrúlegt að sjá samantekt frá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, að sjá hvernig þessum undanþágum er háttað í nágrannalöndunum. Staðan í Noregi, Þýskalandi, Danmörku og á evrusvæðinu er sérstaklega dregin fram og þetta er með allt öðrum og þrengri hætti hér á Íslandi en á þessum svæðum og í þeim löndum sem ég nefndi hér. Það er auðvitað partur af því að rekstrarskilyrði bænda hafa verið jafn broguð og þau hafa verið um langt árabil. Það má eiginlega segja að laun bænda séu sennilega sá launaflokkur sem stjórnvöld hafa sýnt minnsta samúð yfir langt árabil og ef einhver stétt á skilið leiðréttingu, eins og það er kallað hjá sumum — ég kalla það bara launahækkun af því það er það sem þarf að eiga sér stað — þá eru það bændur landsins. Til þess þurfum við m.a. að gera þeim kleift að starfa saman í meira mæli en regluverkið hefur borið uppi hingað til. Með þessu frumvarpi er verið að vinda ofan af því.
Það er eins og með allt sem við gerum hér í þinginu að allt orkar tvímælis þá gert er. En ég held að niðurstaðan verði í öllu falli að verða sú að heimild aðila til samvinnu verði miklum mun meiri en raunin var áður en hið umdeilda mál, sem nú er fyrir Hæstarétti, varð að lögum hér á þarsíðasta þingi. Ég ætla ekki að lengja þetta núna en ég vil bara halda til haga þessum athugasemdum er varða aðkomu ríkislögmanns, því að flest annað sem ég ætlaði að koma inn á hefur komið fram í umræðunni í dag. Þetta kallar á skýringu og sömuleiðis kallar það á skýringu hvers vegna mögulegra áhrifa dóms Hæstaréttar er í engu getið í þeirri greinargerð sem fylgir þessu frumvarpi. Þar er sannarlega áhætta fyrir ríkissjóð og ef ég skil löglærða og sérfræðinga rétt í þessum efnum þá eykur samþykkt þessa frumvarps enn á þá áhættu sem blasir við ríkissjóði hvað mögulega yfirvofandi skaðabótaskyldu varðar. Ég hvet því hv. atvinnuveganefnd til að flýta sér hægt og þingið í heild sinni og leyfa Hæstarétti að hafa sinn gang hvað það mál sem til meðferðar er varðar og taka nýja afstöðu í framhaldi þeirrar niðurstöðu.