landamæri o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Það er mikilvægt að stjórnvöld tryggi að erlend flugfélög sem fljúga hingað framfylgi skyldu sinni samkvæmt íslenskum lögum um að afhenda yfirvöldum hér upplýsingar um farþega og áhöfn. Engu að síður hefur verið brotalöm á því og viðkomandi flugfélög hafa samt ekki verið beitt viðurlögum eða verið meinað að fljúga hingað. Ég hef haft af þessu miklar áhyggjur og tók þetta m.a. upp á síðasta kjörtímabili sem þáverandi formaður utanríkismálanefndar. Ég hef skilið málflutning hæstv. ráðherra þannig að verið væri að tryggja þessi framfylgd enn betur eða, eins og hún sagði sjálf, með leyfi forseta, „að efla landamæraeftirlit og löggæslu“, en við yfirlestur vakna hjá mér áhyggjur um að það sé verið að takmarka heimildir núgildandi laga.
Virðulegi forseti. Ég bið hæstv. ráðherra um að staðfesta það að c-liður frumvarpsins takmarki umfang b-liðar og ef svo er, af hverju má ekki miðla upplýsingum um brot sem geta varðað lægri refsingu en þriggja ára fangelsi? Hvers vegna má ekki miðla öðrum upplýsingum en þarna eru tilgreindar, t.d. um dvalarleyfi innan Schengen, umsækjendur um alþjóðlega vernd og annað sem gæti varðað mögulegar tilraunir til að sækjast eftir dvalarleyfi á Íslandi eftir komu til landsins? Og síðan að lokum: Hvernig skýrir hæstv. ráðherra að langsamlega flest ESB-ríki hafa afhent þessar upplýsingar íslenskum yfirvöldum?