156. löggjafarþing — 13. fundur,  11. mars 2025.

áform ríkisstjórnarinnar varðandi búsetu í Grindavík.

[13:34]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Í kjördæmaviku áttum við þingmenn Suðurkjördæmis ágætisfund með bæjarstjórn Grindavíkur og í gær nýttum við í þingflokki Framsóknar þingflokksfundadaginn m.a. til heimsóknar í Grindavík til að hitta fólk þar, sem er ástæðan fyrir fyrirspurninni hér í dag. Ég held að við getum verið sammála um að okkur hafi tekist býsna vel á undangengnum misserum og árum í þessum þingsal að taka utan um og ná samstöðu um það hvernig skjól við myndum mynda, það hefur tekist býsna vel. Viðsnúningurinn sem þarf að verða snýst um öryggi og það getur svo sem enginn haldið því fram að Grindavík sé öruggari en önnur svæði. En það er búið að gera heilmikið í því. Atvinnulíf er í fullum blóma. Það eru 750–800 manns starfandi þar á hverjum degi og yfir 120 manns sem gista þar og það er kannski komið svolítið að næstu spurningum, um hvað gerist næst. Auðvitað vonum við að það eldgos sem er yfirvofandi valdi ekki tjóni og við höfum séð það sleppa til í síðustu eldgosum vegna þess að við höfum gripið til fyrirbyggjandi aðgerða og reist gríðarlega mikla varnargarða.

Tónninn sem ég heyrði hins vegar á báðum þessum fundum var að upplifunin væri, allt frá kosningum, svolítil bið. Það væru skilaboðin, jafnvel eftir fund með hæstv. forsætisráðherra, að það þyrfti að bíða. Ég skil mjög vel að fólkið í Grindavík sé farið að hafa áhyggjur af því að það sé ekki hægt að bíða endalaust. Viðsnúningurinn, eins og ég sagði áðan — það eru 758 manns starfandi þar og það gista yfir 120 þarna. Ríkið á tæpar 1.000 íbúðir í bænum. Fólk hefði hug á að komast þangað. Um daginn voru stofnuð hollvinasamtökin Járngerður þar sem tónninn var svolítið: Treystið okkur. Hvar megum við koma að? Í vinnu stjórnvalda er verið að vinna sviðsmyndagreiningar með sérfræðingum, jafnvel erlendum aðilum, en þau spyrja: Hvar erum við? Erum við farin að ganga of langt í forræðishyggjunni? Það er það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra. Fólkið segir: Treystið okkur. Við erum vön að fylgja veðurspám og sérfræðingum Veðurstofunnar. Við erum vön að fylgja þeim tilmælum sem koma. Við kunnum þetta. Við þekkjum bæinn okkar og sprungurnar betur en flestir aðrir. (Forseti hringir.) Þau okkar sem eru tilbúin að setjast að og prófa, megum við prófa? Bannið okkur ekki. Treystið okkur til að taka þátt í samtalinu. Hvert er plan ríkisstjórnarinnar?