breyting á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hvað varðar tillögu um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna þá vitum við alveg hvað verkalýðshreyfingunni finnst um þá tillögu. Við vitum alveg — sem hæstv. ráðherra segir að verði auðvitað að vinna í samráði við þá sem munu hafa hagsmuni af þessu og það hljómar allt saman ágætlega — við vitum alveg, herra forseti, hvað verkalýðshreyfingunni finnst. Hún kallaði þessa tillögu stríðsyfirlýsingu fyrir nokkrum dögum, stríðsyfirlýsingu, herra forseti, hvorki meira né minna. Það er því alveg ljóst að áminningarskyldan verður ekki afnumin með samþykki þeirra aðila. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra seinna sinni: Er einhver möguleiki á því að hann leggi fram frumvarp, þetta mikilvæga frumvarp, um afnám áminningarskyldunnar án samþykkis verkalýðshreyfingarinnar eða hafa ákveðnir hagsmunaaðilar neitunarvald innan ríkisstjórnarinnar?