ávana- og fíkniefni.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra Ölmu Möller fyrir að leggja þetta mál fram og ekki síður fyrir að stuðla að upplýstri umræðu um þennan málaflokk. Hann er að vissu leyti vandasamur í umfjöllun vegna þess að hann tengist ólöglegri starfsemi sem við erum jafnframt að leggja fram hér lög og tillögur um hvernig við eigum að koma í veg fyrir. Þeir sem hafa orðið fíkniefnum að bráð hafa þá verið að neyta ólöglegra efna og við erum síðan að leggja fram lög um það hvernig við eigum að hefta það að þau komist inn í landið og fleira þess efnis. Engu að síður er mjög mikilvægt að hér sé upplýst og jákvæð umræða um það hvernig við aðstoðum þá sem hafa orðið undir í þessari baráttu gegn fíkniefnum. Einn liður í því er að koma þessum neyslurýmum á og sú umræða sem fer hér fram stuðlar líka að því að fólk sem orðið er fíklar fái jákvæða móttöku inni á heilbrigðisstofnunum. Og að kerfið í heild sinni upplifi það ágæta fólk sem sjúklinga og mæti þeim á þeim stað.
Ég vil líka fagna því sem kom fram í máli hæstv. ráðherra um að færa umræðuna út fyrir Reykjavík. Vandinn er því miður kominn út um allt land. Á Eyjafjarðarsvæðinu er frú Ragnheiður starfrækt en þar er tekið á móti fíklum og það vantar verulega upp á að bæta þar í ýmsu aðstöðu hjá því fólki sem hefur orðið undir í þessari baráttu. Þá er það gististaður fyrir fíkla þannig að þeir þurfi ekki að gista í fangaklefum; það væri mjög ákjósanlegt að á Eyjafjarðarsvæðinu og jafnvel víðar um land væri aðstaða fyrir fólk sem er á götunni og er fíklar. Síðan er það einfaldlega áfangaheimili, að þeir sem eru að koma úr betrun eða úr afvötnun eða einhvers konar meðferð hafi þá eitthvert skjól í heimabyggð þannig að það þarf að gæta að því.
Ég vil síðan minna á það í þessari umræðu að auðvitað er rétt að koma í veg fyrir að það berist veirur og annað í æðar þessa fólks og þess vegna er þetta mikilvægt. En við eigum líka að nota þessi neyslurými til að benda þeim sem þar leita skjóls eða aðstoðar á það að hægt sé að komast út úr þessu, það sé meðferð til staðar. Við eigum ekki síður að hafa einhverjar sálfélagslegar ábendingar og benda fólki á að það sé kannski rétta leiðin að reyna að snúa blaðinu við og komast út úr vítahring fíkniefna. Ég held að við eigum einmitt að nota þessi neyslurými til að koma þeim skilaboðum einnig til skila.