skipulag haf- og strandsvæða og skipulagslög.
Herra forseti. Hér mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018. Efni frumvarpsins er fyrst og fremst tæknilegs eðlis og miða breytingarnar að því að skýra og einfalda framkvæmd laganna áður en frekari vinna við gerð strandsvæðisskipulagsins hefst.
Lög um skipulag haf- og strandsvæða, sem tóku gildi í júní 2018, eru fyrsta heildstæða löggjöfin um skipulag haf- og strandsvæða hér við land. Þau kveða annars vegar á um að mótuð skuli stefna um skipulag haf- og strandsvæða sem verði hluti landsskipulagsstefnu og hins vegar um gerð strandsvæðisskipulags fyrir afmörkuð strandsvæði eftir því sem tilgreint er í stefnunni hverju sinni.
Í landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024–2038 og fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árið 2024–2028, sem Alþingi samþykkti í maí 2024, voru í fyrsta sinn settar fram áherslur og aðgerðir er varða skipulag haf- og strandsvæða í samræmi við framangreint. Kemur þar m.a. fram að hefja eigi vinnu við gerð strandsvæðisskipulags fyrir annars vegar Eyjafjörð og hins vegar Skjálfandaflóa á árinu 2025. Þegar hefur verið unnið strandsvæðisskipulag fyrir annars vegar Vestfirði og hins vegar Austfirði sem tók gildi 7. mars 2023.
Í undirbúningi er nú heildarendurskoðun á lögum um skipulag haf- og strandsvæða í ljósi reynslunnar af framkvæmd þeirra. Er það í samræmi við bráðabirgðaákvæði II við lögin þar sem kveðið er á um að þau skuli endurskoðuð í ljósi reynslunnar að lokinni vinnu við framangreint strandsvæðisskipulag Vestfjarða og Austfjarða en endurskoðuninni átti að vera lokið eigi síðar en þremur árum eftir gildistöku laganna. Áður en niðurstöður þeirrar vinnu liggja fyrir og frekari vinna við gerð strandsvæðisskipulags hefst er hins vegar nauðsynlegt að gerðar verði tilteknar lágmarksbreytingar á lögunum til að sníða af þeim tæknilega vankanta sem komið hafa í ljós við framkvæmd þeirra og eru þær breytingar efni þessa frumvarps.
Helstu breytingarnar eru eftirfarandi — og ég hvet hv. þingmenn til að taka mjög vel eftir þessu vegna þess að þetta er ekki búið að vera mitt sérsvið fram til þessa þannig að það er náttúrlega ákveðin áskorun að vera komin hér í eitthvert tæknilegt sniðmát á haf- og strandsvæðisskipulaginu. Þannig að þetta er nú eiginlega — já, það er alltaf gaman að setja upp nýja hatta og það er einstaklega ánægjulegt að setja sig inn í ný mál, mál sem maður hefur ekki látið sig varða á hinu háa Alþingi en eru nú orðin mér hjartans mál ásamt svo mörgu öðru.
Skýrð eru í fyrsta lagi ákvæði laganna um skipunartíma svæðisráða þannig að ótvírætt verði að skipun svæðisráðs falli ekki niður við gildistöku strandsvæðisskipulags. Þannig mun ekki þurfa að endurskipa svæðisráð ef gera þarf breytingar á strandsvæðaskipulaginu. Eins og þið sjáið hérna þá er mikil hagræðing sem felst í þessu og verið að girða fyrir að allt í einu stöndum við uppi með það að hafa ekki neitt svæðisráð. Það er verið að tryggja að það falli aldrei niður.
Gerð er breyting á ákvæði um skipan svæðisráða sem til er komin vegna breyttrar verkaskiptingar innan Stjórnarráðsins. Fjórir af átta fulltrúum í svæðisráði verða hins vegar eftir sem áður tilnefndir af ráðherrum sem fara með þá málaflokka er helst varða nýtingu og vernd auðlinda á haf- og strandsvæðum. Þrír fulltrúar eru tilnefndir af þeim sveitarfélögum sem liggja að viðkomandi strandsvæði og einn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þá verður einnig kveðið á um það með skýrum hætti að tilnefningaraðilar geti skipt út sínum fulltrúum í svæðisráði ef þörf þykir.
Felld er út upptalning í dæmaskyni á fagstofnunum sem eru svæðisráðum og Skipulagsstofnun til ráðgjafar. Upptalningin er ekki tæmandi auk þess sem hún verður úrelt ef breytingar eru gerðar á stofnanakerfi ríkisins að þessu leyti. Nægjanlegt er að tilgreina að um sé að ræða fagstofnanir sem fara með málaflokka er varða nýtingu og vernd á haf- og strandsvæðum.
Þá er hlutverk Skipulagsstofnunar skýrt hvað varðar mat á því hvort tiltekin framkvæmd eða starfsemi samræmist gildandi strandsvæðisskipulagi en óljóst hefur verið hvenær leita beri eftir slíku áliti stofnunarinnar og hvaða vægi það hafi.
Kveðið er á um það með skýrum hætti að auk þess að strandsvæðisskipulag skuli taka mið af stjórnvaldsfyrirmælum, öðrum lögum og lögbundnum ákvörðunum um nýtingu og vernd haf- og strandsvæða þá skuli það taka mið af öðrum stefnum og áætlunum sem hafa áhrif á nýtingu og vernd haf- og strandsvæða, svo sem kerfisáætlun um uppbyggingu flutningskerfis raforku.
Einnig er lagt til að styrkja betur lagastoð skilgreininga nýtingarflokka sem kveðið er á um í reglugerð um gerð strandsvæðisskipulagsins. Nýtingarflokkarnir eru taldir ein forsenda þess að unnt sé að tryggja samræmda nálgun við gerð strandsvæðisskipulags á landsvísu, auk þess sem þeir hafa mikla þýðingu við túlkun skipulagsins og samanburð milli skipulagssvæða. Eru þeir að þessu leyti sambærilegir landnotkunarflokkum í aðalskipulagi sveitarfélaganna sem skilgreindir eru í skipulagsreglugerð.
Loks er lögð til breyting á ákvæði til bráðabirgða í skipulagslögum. Með því ákvæði var heimilað að kostnaður við gerð strandsvæðisskipulags fyrir Vestfirði og Austfirði yrði greiddur úr Skipulagssjóði þar sem ekki lægi fyrir hvernig slík skipulagsgerð yrði fjármögnuð til framtíðar. Þar sem sú stefnumörkun bíður heildarendurskoðunar laga um skipulag haf- og strandsvæða er lagt til að fyrirhuguð gerð strandsvæðisskipulags fyrir Eyjafjörð og Skjálfandaflóa verði líka kostuð af Skipulagssjóði.
Herra forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum þessa frumvarps og ég legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og til 2. umræðu.
Þess skal getið að þetta er eitt af þeim málum sem við erum að taka við frá fráfarandi ríkisstjórn. Það hafði ekki verið mælt fyrir því áður en við búum að ýmsum fjársjóðum sem hefur verið unnið að af fráfarandi ríkisstjórn. Þó að við séum nú oft að kýta og agnúast hvert út í annað þá er það einfaldlega þannig að öll þau góðu verk sem eru til staðar — við hikum ekki við að fylgja þeim eftir. Við eignum okkur ekki neitt sem aðrir eiga en við þökkum fyrir það sem vel er gert.