156. löggjafarþing — 13. fundur,  11. mars 2025.

þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

148. mál
[15:18]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Þetta mál er mér hjartans mál. Þetta mál snýst um það að einfalda heiti á frábærri stofnun sem ég hef aldrei munað hvað heitir raunverulega af því að hún ber svo mörg nöfn, ég held að hún beri 13 nöfn og 113 stafi. Sem sagt, ég er að mæla hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hvorki meira né minna en þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Það er ekki öllum gefið hreinlega að læra þetta utan að nema með miklu átaki og ég hef ruglað þessu sundur og saman og er búin að mæla fyrir þessu frumvarpi — ég held að þetta sé í fjórða frekar en í fimmta sinn sem ég mæli fyrir þessu frumvarpi og loksins er það að verða að lögum. Ég ætla ekkert að hafa fleiri orð um það. Hér er einfaldlega verið að óska eftir því að eftir að þetta frumvarp nær fram að ganga þá heiti þessi dásamlega stofnun Sjónstöðin. Án Sjónstöðvarinnar þá t.d. stæði ég ekki hér. Án þeirrar þjónustu sem Sjónstöðin veitir þeim sem hún getur hjálpað þá væri ég hvorki lögfræðingur, þingmaður, ráðherra eða nokkuð annað. Það var með hreinum ólíkindum þegar sá heimur opnaðist að fá utanumhald um sína fötlun, fá aðstoð við að prenta út námsgögn og fá í rauninni að finna það sem gefur manni byr og veitir manni ljós inn í lífið og gerir manni kleift að fá að vera til og standa eins nálægt því að vera jafnfætis þeim sem eru ófatlaðir og kostur er. Þannig að ég segi bara: Til hamingju. Ég efast ekki um að þingheimur allur muni með mikilli gleði taka utan um það að þessi dásamlega stofnun muni hér eftir heita Sjónstöðin þegar þetta frumvarp hefur fengið sína eðlilegu meðferð í gegnum þingið. Ég mun því leggja til að málinu verði vísað til hv. velferðarnefndar.