viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Það er hárrétt að þetta er kerfi sem hefur áhrif á dreifingaraðila olíu á Íslandi. Og auðvitað gildir það um þessi kerfi, sem fela í sér að reynt er að verðsetja kolefni með einhverjum hætti, að á endanum hefur það líka ákveðin áhrif á neytendur. Ég ætla ekkert að fara að hafna því, til þess er leikurinn að einhverju leyti gerður. Það var metið þannig, skilst mér, í tíð fyrri ríkisstjórnar að það væri skilvirkara að innleiða þetta markaðskerfi með losunarheimildir, þegar kemur að þessum geirum, en að ná fram sömu markmiðum einvörðungu með kolefnisgjöldum og hækkun þeirra. Ég geri í sjálfu sér enga sérstaka athugasemd við það mat. Ég held að þessi innleiðing á þessu tiltekna regluverki sé í ágætu samræmi við þau markmið sem Ísland hefur sett og að við munum í þessu, líkt og í svo mörgu öðru samstarfi, njóta sérstöðu okkar. En það kallar auðvitað á mjög hraustlega hagsmunagæslu og ég tek undir með hv. þingmanni hvað það varðar. Þar mun þessi ríkisstjórn ekki gefa neitt eftir.