156. löggjafarþing — 13. fundur,  11. mars 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

145. mál
[16:01]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég þekki aðeins þetta mál, sem var nú mikið skoðað, og það sem enn þá þvælist fyrir mér og mér fannst ekki koma skýrt fram í máli ráðherra er að við erum að vinna eftir þessum þremur flokkum. Við erum með ETS-kerfið með sínum kostum og göllum þar sem við erum með stóriðjuna, flugið og millilandasiglingar. Síðan erum við með ákveðinn flokk sem er kallaður ESR, sem er á beina ábyrgð Íslands. Þar inni eru stærstu vegasamgöngurnar, þar eru fiskiskipin, landbúnaðurinn, kælibúnaður, urðun úrgangs, jarðvarmavirkjanir, sem ættu nú ekki að vera þar en það er annað mál. Síðan kem ETS. Við erum með okkar markmið og við erum við að vinna eftir þessu varðandi það sem er á beina ábyrgð Íslands. Af hverju eru menn að bæta þessu við? Alla vega fékk ég aldrei skýr svör um það á sínum tíma.