viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Þetta er hárrétt útlegging hjá hv. þingmanni. Við erum þarna að innleiða að einhverju leyti þetta ETS2-kerfi á losun sem einmitt fellur undir ESR, þessa beinu ábyrgð. Stutta svarið er kannski bara það að ETS-kerfið hefur virkað vel til að draga úr losun án þess að raska samkeppnishæfni fyrirtækja og án þess að valda almenningi skakkaföllum og þá er matið væntanlega að það sé skynsamlegt að innleiða sama kerfi þegar kemur að m.a. dreifingaraðilum olíu vegna þeirrar losunar sem verður þegar kemur að vegasamgöngum. Þetta frumvarp felur þannig í sér innleiðingu á ETS.
Þannig að ég svari kannski því sem líka kom fram hér á undan þá er allur gangur á því hversu langt Evrópuríki eru komin í þessari innleiðingu. Ísland hefur svona fylgt Norðmönnum svolítið, verið í samfloti með þeim, og þar hefur þetta þegar verið innleitt. En við erum, held ég, með seinni skipunum hvað það varðar.