viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki til þess að það hafi verið eitthvert vandamál með ESR. Við erum að vinna eftir ákveðnum aðgerðum. Stærsta aðgerðin án nokkurs vafa eru orkuskiptin í bílum þar sem við höfum verið að styrkja það að menn hafi keypt sér rafbíla. Þó að það hafi lækkað mjög mikið á síðasta kjörtímabili breytir það því ekki að þar stöndum við, síðast þegar ég vissi, númer tvö meðal þjóða. Maður sér ekki alveg hvað er unnið með því að bæta við kerfi, sem kallar á þó nokkra umsýslu. Hæstv. ráðherra nefndi mikið kolefnisgjaldið. Það er bara um 10% af bensíngjöldunum. Faktískt gætum við bara breytt nafninu á þessum vörugjöldum og bensíngjöldum, olíugjöldum og hvað þau heita og við erum alltaf langt, langt fyrir ofan það sem markmiðin eru með frumvarpinu. Ef menn væru þá bara að hætta í ESR og fara í ETS2, gott og vel, en það er ekki meiningin. Við erum bara að bæta þessu við og í rauninni að flækja kerfi sem fæstir (Forseti hringir.) þekkja. Það er kannski ekki það einfaldasta í heimi en hefur virkað ágætlega.