viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Þetta mál er um margt áhugavert og í grófum dráttum er rétt að nefna hér að það endurspeglar ákveðnar áherslur sem hafa verið hjá stjórnvöldum undanfarinna ára sem eru þær einhvern veginn að fljóta bara áfram með straumnum og taka þátt í alþjóðasamfélaginu, eins og það er kallað, standa við alþjóðlegu skuldbindingarnar sínar en hirða minna um þjóðlegar skyldur. Að standa við skuldbindingar Íslendinga er orðið viðkvæðið í nánast hverju einasta lagafrumvarpi sem kemur hingað inn í þingið, við eigum að standa við alþjóðlegar skuldbindingar.
Þetta er auðvitað margslungið mál, þetta viðskiptakerfi Evrópusambandsins, ETS, sem núna er verið að þróa áfram í þetta nýja kerfi sem er ETS2, önnur útgáfa af þessu, sem þó er ekki að bæta hitt heldur er hreinlega bara viðbót við fyrra kerfið. Það er um það að segja að öðrum þræði er því stillt fram sem umhverfismáli, loftslagsmáli, en í raun eru þetta auðvitað líka að einhverju leyti tæknilegar viðskiptahindranir og bara enn eitt dæmið um almenna kerfisvæðingu sem á sér stað í Evrópusambandinu og á Vesturlöndum.
Ég vil nefna það hér að það er rétt að hafa það í huga að vegna einhverra óskiljanlegheita þá voru umhverfismálin hluti af EES-samningnum á sínum tíma þegar Ísland gekk til samstarfs við Evrópusambandið með EES-samningnum. Það er ekkert hafið yfir vafa. Ég hef rætt við marga eldri þingmenn sem voru þá hér í þessum sal að véla um þennan samning og hef farið aðeins yfir umræður um þennan samning og hvernig umhverfismálin komust einhvern veginn inn í þennan samning um fjórfrelsið, um frelsi til viðskipta, frelsi til fólksflutninga og þar fram eftir götunum. En gott og vel, menn gáðu kannski ekki að sér þá. Menn huguðu ekki að endinum eða sáu ekki fyrir hvernig þróunin yrði í umhverfismálum. Hverjum datt í hug á þessum tíma nema kannski örfáum að umhverfismál á þessum tíma yrðu í framtíðinni hinn nýi sósíalismi? Það er bara þannig. Þegar vinstri blokkirnar voru að falla hér hver um aðra um 1990, þegar sósíalisminn var að falla og kommúnisminn, hverjum hefði dottið það í hug að umhverfismálin yrðu nánast næsti sósíalismi?
Ég ber svo sem ekki kala til þeirra þingmanna á þessum tímum sem létu umhverfismálin heyra undir EES-samninginn en það er einhvern veginn eins og menn hafi ekki hugað að því eða haft puttann á púlsinum og gripið inn í þegar málin fóru fram úr sér í þessum efnum, m.a. með uppdiktuðu kerfi, einhverju viðskiptakerfi, sem sumir hægri menn telja því miður að sé einhvers konar markaðslausn, að hafa komið upp markaði fyrir einhvern loftslagskvóta eða losunarheimildir. Þetta er ekki meiri markaður en svo eða frjáls markaður að þetta er alger uppspuni frá rótum, markaðurinn sem slíkur.
Ég vil líka nefna sérstöðu Íslands, úr því að menn vilja ræða loftslagsmálin og það er auðvitað skynsamlegt að huga að þeim og að allir hugi að því að draga úr losun skaðlegra lofttegunda og þar fram eftir götunum. En þá verður ekki fram hjá því litið, sem mér finnst þó margir hafa gert í þessum þingsal í gegnum árin, að Ísland hefur algjöra sérstöðu meðal þjóða í heiminum þegar kemur að loftslagsmálum. Hér er hlutfall endurnýjanlegrar orku í heildarorkunotkun Íslendinga 85–90%. Það hefur verið markmið Evrópusambandsríkjanna að ná þessu hlutfalli upp í kannski 30% á góðum degi. Evrópusambandsríkin hafa sammælst um að búa sér til kerfi og tekið höndum saman um að gera það. En þá ber svo við, fyrir ekki svo löngu síðan, miklu styttra en frá EES-samningnum og hefur ekkert með EES-samninginn að gera, að Ísland, íslensk stjórnvöld kæra sig með einhverjum hætti inn í það samstarf og fara með okkar vina- og frændþjóð Noregi, sem hefur reyndar svipaða sérstöðu og Ísland að þessu leyti, og fara í gegnum Parísarsáttmálann í einhvers konar samstarf í þessum efnum. Ég hef svo sem ekkert á móti því að menn taki þátt í alþjóðasamstarfi og sýni sig og sjái aðra á þessum ráðstefnum og heyri í mönnum hljóðið og annað, en reyndin hefur verið sú að Íslendingar hafa tekið þá afstöðu að verða kaþólskari en páfinn í þessum efnum og berja sér á bak með hríslunni og telja sér trú um að hér sé allt í einhverju óstandi í loftslagsmálum. Þeir gerðu sem sagt engar athugasemdir hér við það þegar menn tóku upp loftslagskvóta og fóru að rukka ríki um losun vegna flugs, losun vegna samgangna á sjó og uggðu ekki einu sinni að sér eins og á síðasta kjörtímabili þegar stjórnvöld höfðu ekki einu sinni áhuga á því að halda hagsmunum og sjónarmiðum Íslendinga til haga þegar það var kynnt til sögunnar að á sjóflutninga yrðu lagðir sérstakir loftslagskvótar. Það var þrátt fyrir að önnur ríki sem búa við sambærilega stöðu og Ísland hvað fjarlægðir varðar, eyríki, þau eru reyndar ekki mörg en þó einhver, náðu að halda því til haga að þau gætu auðvitað ekki staðið undir slíkum skuldbindingum. En allt þetta var látið gossa og ETS-kerfið líka.
Nú liggur fyrir þetta frumvarp um ETS2 og hver skyldi tilgangur og markmið frumvarpsins vera? Það er annars vegar tiltekið í athugasemdum í greinargerð að markmiðið með frumvarpinu sé að innleiða ákvæði tilskipunar Evrópusambandsins frá árinu 2023 og tilgangur frumvarpsins sé að meginstefnu tvíþættur, annars vegar að innleiða ákvæði tilskipunar frá árinu 2023 og gera nauðsynlegar lagfæringar á ákvæðum sem samþykkt voru með lögum 2023 til að tryggja rétta innleiðingu tilskipunar. Tilgangur og markmið þessa frumvarps er sem sagt sá einn að innleiða einhverja tilskipun frá Evrópusambandinu. Ég geri athugasemdir við það að þetta frumvarp skuli ekki vera þéttara að efni sínu, þótt ekki væri nema til þess að hv. þingmenn, ég tala nú ekki um almenning og fyrirtæki í landinu sem þurfa að starfa eftir þessu, geti glöggvað sig á áhrifum þessa máls, bara í krónum og tölum og praktískum þáttum. En það er engin tilraun gerð til þess í frumvarpinu að draga slíkt fram heldur er hér fjallað um þessar blessuðu tilskipanir sem allt gengur út á, það þurfi að innleiða þær. Það er þó tiltekið hér og ég þakka fyrir það að í upphafi viðræðna við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í byrjun sumarsins 2023, þá hafi verið sérstaklega rætt hvort ETS2 kerfið félli undir gildissvið EES-samningsins. Þannig að það hefur nú einhverjum ágætum embættismanni kannski dottið í hug að það gæti verið umræðunnar virði að ræða aðeins hvernig við værum komin út í þessa breiðu og djúpu á. En því var hins vegar til að svara af framkvæmdastjórninni, einhliða, að kerfið yrði bara óaðskiljanlegur hluti af ETS-tilskipuninni sem var innleidd fyrir nokkru. Þá hefði ég kannski sem embættismaður spurt: Hvernig er hún hluti af EES-samningnum?
Svo er það nefnt hér með ETS2-kerfið, og er nefnt sem málsástæða framkvæmdastjórnarinnar gagnvart EES-ríkjunum, að mikilvægt sé að innleiða það vegna þess að það sé hluti af grænpakka Evrópusambandsins, Green Deal, sem liggur fyrir að löndin í Evrópusambandinu eru að þræta um þessa dagana. Það er að molna mjög hratt undan því samkomulagi enda fullkomlega óraunhæfar væntingar settar fram í þeim pakka. Ég spurði hæstv. ráðherra hér eftir framsögu hans hvort hann vissi hversu mörg ríki Evrópusambandsins hefðu breytt sinni löggjöf til þess að mæta þessari innleiðingu tilskipunar um ETS2-kerfið. Hann nefndi það í sínu andsvari að hann héldi að það væru bara flest og við værum síðust í röðinni. Það er alltaf þannig að Íslendingar eru að missa svefn yfir einhverjum innleiðingarhalla sem þeir telja að sé hið versta mál. En staðreyndin er hins vegar sú að það eru örfá ríki Evrópusambandsins sem hafa innleitt þessa ETS2-reglugerð, örfá ríki. Það er deilt um hagsmuni og sjónarmið með tilliti til lífskjara í þessum löndum þannig að það liggur ekkert fyrir um að þetta verði yfirhöfuð komið í gagnið, eins og er svo sem nefnt í þessu frumvarpi, það er ekki ætlunin að þetta komist í gagnið fyrr en 2027 eða 2030, sumir þættir þessa frumvarps. Þess vegna ætla ég að leyfa mér bara að vísa því til hv. umhverfisnefndar sem fær þetta mál til umfjöllunar að hún skoði það virkilega hvort það borgi sig fyrir Íslendinga að vera búnir að innleiða þessa gerð á þessu þingi eða jafnvel á næsta þingi eða á þessu kjörtímabili og hvort það sé ekki skynsamlegt að Ísland bíði nú og sjái hvernig Evrópusambandsríkjunum vegni við bæði innleiðinguna og framkvæmdina á þessu. Það geta ekki verið ríkari skuldbindingar Íslands í þessu heldur en í Evrópusambandsríkjunum. Og þótt einhver kynni að líta á það þannig þá minni ég á að það eru hinar þjóðlegu skyldur sem skipta máli en ekki alþjóðlegar skuldbindingar, jafnvel þó að vísað sé til Evrópusambandsins í þeim efnum.
Ég vil að lokum líka að nefna að það blasir við að þessi innleiðing, eins og innleiðingin á ETS-kerfinu — það kom nú fram í andsvari hæstv. ráðherra eftir framsögu hans að Ísland væri í svo góðri stöðu eftir að hafa þénað svo mikið eftir upptöku ETS-viðskiptakerfisins, þénað með þeim hætti að hér væru fyrirtæki, hann var væntanlega að vísa til Landsvirkjunar og fleiri fyrirtækja, að selja aflátsbréf hægri vinstri til Evrópu þannig að þetta hefði skilað sér í miklum tekjum fyrir suma, fyrir einhverja hér á Íslandi. Og þannig skildi ég hæstv. ráðherra að þar með væri þetta borðleggjandi allt saman. En ég bara bendi á að í þessu máli er gert ráð fyrir að það þurfi að kaupa loftslagsheimildir, losunarkvóta, ekki eins og í ETS-kerfinu þar sem upphaflega var ákveðinn kvóti sem deilt var út ókeypis til landanna sem áttu að eiga aðild að ETS-kerfinu og þar með gátu menn haft einhver viðskipti hægri vinstri í einhvern tíma með þessa loftslagskvóta sem viðkomandi ríki notuðu ekki. En það er þannig með ETS-kerfið að loftslagskvótinn sem var ákveðinn upphaflega var ákveðið stór og hann fer alltaf minnkandi. Hann er dreginn saman þannig að það verður úr minna að moða og minni gróðatækifæri, í anda hæstv. ráðherra. En í ETS2-kerfinu verður ekki um það að ræða að úthlutað verði ókeypis loftslagskvótum til aðildarríkjanna. Það verður þannig að menn þurfa allir að kaupa loftslagskvóta. Það er sérstaklega tilgreint hér að þetta á við um byggingar, sem sagt vegna húshitunar. Það er kannski á ekki við á Íslandi þar sem við hitum hús með rafmagni. En hvað veit ég? Kannski endar það einhvern tímann í því að það þarf að hita hús með olíu, það hefur nú verið gert í litlum mæli hér á landi. En þá á það við um þetta, það þarf að kaupa loftslags- og losunarkvóta vegna húshitunar og í vegasamgöngum og einhverjum viðbótargeirum sem eru óskilgreindir hérna og ekki fjallað um sérstaklega, sem hefði verið heppilegt að fá aðeins vitneskju um. Það er ekki um það að ræða að það verði neinir ókeypis loftslagskvótar heldur þurfa menn að kaupa þetta.
Hérna er tiltekið að dreifingaraðilum olíu verði gert að kaupa þessa kvóta og ekki nóg með það heldur verður á böl þeirra bætt með því að þeir þurfa líka að fara að skila þverhandarþykkum skýrslum til eftirlitsaðila hér á Íslandi um innkaup, sölu og annað slíkt. Hér segir í frumvarpinu að það verði því ekki endanlegir neytendur eldsneytis sem muni hafa skyldum að gegna samkvæmt kerfinu heldur verði það dreifingaraðilarnir. Það er í besta falli ósvífið að setja þetta svona fram því að auðvitað eru það neytendur sem á endanum bera byrðarnar, sem bera kostnaðinn af bæði kaupum á losunarkvótanum og einnig þeirri vinnu sem leggst á þessa dreifingaraðila og þessa vöru sem hinn almenni neytandi er að kaupa. Það verður fjölskyldan í landinu, hin venjulega íslenska fjölskylda sem mun bera byrðarnar af innleiðingu ETS2-kerfisins.