viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Á Iðnþingi á dögunum sagði einn af framsögumönnunum að það væri svolítið upplifun atvinnulífsins að stjórnmálamenn sætu í aftursætunum og segðu atvinnulífinu að gefa í en héldu í handbremsuna á sama tíma. Það er kannski akkúrat það sem við erum að gera hér núna. Við mætum á tyllidögum á ársfundi og annars staðar og tölum hátíðlega um það hvernig við viljum sjá íslenskt atvinnulíf blómstra og sækja fram og tileinka sér það nýjasta sem fyrir er og verða fremst í heimi. En síðan erum við á handbremsunni og mætum hér og erum að innleiða enn flóknara kerfi með auknum og enn þá meira íþyngjandi álögum sem margir halda fram að sé nánast ómögulegt í framkvæmd. Í frumvarpinu er umsögn frá Samtökum atvinnulífsins, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum verslunar og þjónustu og Viðskiptaráði, hér eftir nefnt samtökin, þar sem segir, með leyfi forseta:
„Í sameiginlegri umsögn samtakanna kemur fram að markmið með ETS2-kerfinu sé að flýta orkuskiptum með því að gera eldsneyti með litla eða enga losun fýsilegri kost samanborið við notkun jarðefnaeldsneytis. Til að það verði að veruleika þurfi slíkt eldsneyti að vera til og jafnframt þurfi að vera fýsilegra að nýta það en jarðefnaeldsneyti því að annars gæti kerfið orðið til þess að dregið yrði úr framleiðslugetu fyrirtækja, samkeppnisstaða þeirra yrði skert sem og lífskjör almennings.“
Það er nefnilega þannig að þetta helst allt í hendur, framleiðslugeta, framleiðni og samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja helst í hendur við lífskjör Íslendinga. Hér koma Samtök atvinnulífsins ásamt fleiri undirsamtökum og benda akkúrat á þetta. Hér erum við að tala um loftslagsmarkmið og orkuskiptin. Þá ætla ég bara aftur að fara með þær tölur sem ég hef nokkrum sinnum talað um hér af því að mér finnst eins og það fari ekki alltaf saman hljóð og mynd í þessum ræðustól.
Í orkuspá Landsnets segir: Það þarf 5.000 GWst fyrir 2035. Ef við ætlum að fara í 100% orkuskipti þurfum við 16.000 GWst til viðbótar, 21.000 GWst. Við vorum að ræða hér um orkukosti um daginn, 3.700 GWst, og það er verið að leggja til að helmingurinn af þeim fari í vernd. Hvar eigum við að fá þessar gígavattstundir? Hvernig ætlum við að innleiða það að við ætlum að fara í orkuskipti? Við erum búin að setja okkur einhver loftslagsmarkmið. Við erum búin að undirgangast ákveðnar kvaðir á fyrirtækin í landinu, kolefnisgjöld, og núna loftslagskvótakaup. Þetta endar allt í heimilisbókhaldinu. Þetta endar alltaf á heimilunum í landinu. Við vitum það að ef auknar álögur eru settar á olíufélögin þá endar það bara í verði til neytenda. Það er bara þannig. Þannig að við skulum bara tala um hlutina eins og þeir eru. Það er nefnilega merkilegt að Ísland er 85–90% grænt og við vorum með undanþágu frá Kyoto-bókuninni, en við fórum, eins og kom fram í ræðu hv. þm. Sigríðar Andersen, sem er alveg rétt, einhvern veginn út úr þessari undanþágu. Við vorum með undanþágu af því að við erum 90% græn. Við fórum úr þessari undanþágu, skrifuðum upp á Parísarsáttmálann. Og nú erum við komin í kerfi sem leggur á okkur auknar álögur. Eins og hefur komið fram: Af hverju erum við að leggja þetta fram fyrst þjóða eða með fyrstu þjóðum í Evrópu á sama tíma og aðrar Evrópuþjóðir eru ekki búnar að taka þetta upp, sem eru í Evrópusambandinu? Ég tek undir með hv. þm. Sigríði Andersen varðandi það sem hún bendir á: Eigum við ekki bara að sjá til hvort þetta fer í gegnum hin 27 Evrópusambandsríkin og hvernig gengur með það?
Það er líka eitt í þessu frumvarpi sem hefur verið bent á, hvort það sé ekki skörun á milli þessa frumvarps og frumvarpsins um kílómetragjaldið af því að í kílómetragjaldinu á að hækka kolefnisgjaldið umtalsvert en í þessu frumvarpi þurfa olíufélögin að kaupa sér ETS-heimildir. Er þetta ekki tvísköttun? Er búið að fá undanþágu fyrir olíufélögin af því að þau eru að borga hátt kolefnisgjald? Er búið að fá undanþágu hjá ESA fyrir því eða ætlum við bara að fara í þessa tvísköttun? Ég held að það sé eitthvað sem við þurfum að klára.
En ég segi bara enn og aftur: Þetta frumvarp þarf að ræða vel og ég tel, virðulegur forseti, að við verðum að horfa til þess hvaða álögur við erum að fara að leggja á fyrirtækin í landinu sem á endanum mun enda í bókhaldi heimilanna í landinu. Hvaða álögur erum við að fara að leggja á umfram aðrar Evrópusambandsþjóðir sem eru ekki búnar að innleiða þetta? Ég held að við ættum að horfa til þess að bíða með þetta þangað til við sjáum hvernig þetta hefur gengið annars staðar af því að eins og kom fram hjá hv. þm. Guðlaugi Þór þá dregur Draghi-skýrslan fram mjög dökka mynd af stöðu Evrópu og það eru margar Evrópuþjóðir farnar að velta því fyrir sér hvernig þær eigi að bregðast við til að ná Evrópu á rétt spor aftur.