156. löggjafarþing — 13. fundur,  11. mars 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

145. mál
[17:02]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég ætla svo sem ekki að lengja þessa umræðu mikið. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með og sitt sýnist hverjum. Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanna eins og Jens Garðars Helgasonar og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hvað málið varðar.

Mig langaði að koma inn á ákveðinn þátt, frú forseti, sem snýr að því hvernig við mælum losun. Stærstur hluti af þeirri losun sem um er rætt í heildarlosun Íslands er af landnotkun. Ef ég hef skilið þetta rétt eru rétt um 60% af heildarlosun af landnotkun. Þá er spurningin: Hvernig mælum við þá losun? Sitt sýnist hverjum þegar kemur að því hvernig sú losun er mæld. Við þekkjum öll umræðuna varðandi losun af ræktarlandi t.d., sömuleiðis umræðuna sem tengist því að endurheimta votlendi og annað slíkt. Það hafa verið gerðar mælingar með mjög misjöfnum niðurstöðum, við skulum orða það þannig, og mjög breytilegt eftir því hvar á landinu er mælt. Ég held að það væri mjög æskilegt fyrir okkur — í ljósi þess að þetta hefur allt áhrif á þá heildarlosun sem um er rætt hér og við erum sömuleiðis að velta þá fyrir okkur heildarlosun sem kemur frá okkur og hér hefur verið umræða sem snýr að samgöngum og almennri notkun sem er svo sem eðlilegt og við vitum svo sem sirka hver sú mæling er en þegar kemur að landnotkun þá er það mín skoðun og margra annarra að þar þurfum við að endurskoða hvert við erum að fara, því að það er tiltölulega einfalt mál að gefa sér einhvern ákveðinn mælikvarða, skella í sjálfu sér „skuldinni“ einfaldlega, við getum orðað það þannig, frú forseti, á landnýtingu og landnotkun. Í mínum huga er það ekki rétt nálgun á þessu viðfangsefni. Við getum haft ýmsar skoðanir á því hvort þessi innleiðing og einhverjar aðrar innleiðingar frá Evrópusambandinu séu þess efnis að við eigum að ganga þennan veg o.s.frv. en mér finnst mikilvægt í þessu samhengi að við tökum alla þætti með í þessari umræðu.

Ef niðurstaðan væri sú að við gætum minnkað losun með öðrum mælikvörðum, sem er nú svolítið sérstakt og einfalt og minnir svolítið á að það átti að bjarga allri losun á landi með því að fylla upp í 70 ára gamla skurði, sem mér þótti á sínum tíma og þykir enn alveg afskaplega fráleitt, þá er það held ég vel til þess vinnandi fyrir okkur. Sömuleiðis eru komnar fram rannsóknir sem sýna að land bindur mun meira en það losar, þ.e. land sem er í rækt. Land sem er nýtt bindur kolefni. Það land er þá ekki að losa á sama tíma. Síðan getum við sömuleiðis horft til þess að stórefla hér landgræðslu og skógrækt. Landið losar þá sömuleiðis ekki og auk þess kemur það til með að binda. Það eru vissir þættir sem ég held að sé mikilvægt í þessu samhengi, frú forseti, að taka hér í umræðunni og mig langaði bara rétt að koma hérna inn í restina af þessari fróðlegu umræðu sem hefur farið fram í dag og benda á þennan þátt, því að ef talan er rétt, þ.e. heildarlosun af landi er allt að 60% af heildarlosun, þá er það ansi mikið. Hér hafa verið nefndar stórar fjárhæðir sem við erum að koma út í plús varðandi ýmis fyrirtæki hvað þetta varðar, verið að selja hér kolefniseiningar úr landi og við sjáum svo sem líka þá ásókn í land hér, erlendir aðilar hafa áhuga á að fjárfesta hér og sömuleiðis innlend fyrirtæki sem vilja koma hingað og fara í skógrækt og græða landið.

Frú forseti. Ég held að þetta sé viss hlutur sem væri áhugavert fyrir hv. umhverfis- og samgöngunefnd að taka til skoðunar, þ.e. hvernig við komum fram við þær mælingar sem um er rætt í þessu.