156. löggjafarþing — 13. fundur,  11. mars 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

145. mál
[17:08]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka umræðuna, það er nú kannski ekki mitt að þakka en jú, ég ætla samt að þakka hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunni. Mér finnst ljóst samkvæmt þessari umræðu hvað það er mikilvægt, og ég hef svo sem verið þeirrar skoðunar mjög lengi, að við þurfum að taka þessa umræðu mjög vel. Þetta snýr að mörgu. Eitt er náttúrlega grundvallaratriði, það er samkeppnishæfni þjóðarinnar og við skulum ekki gleyma því að orkuskiptin okkar hafa skilað sér gríðarlega í efnahagslegum ávinningi. Auðvitað er það þannig að þegar við erum farin úr norskri olíu yfir í íslenska orku þá verður það mjög gott. Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson var að ræða hérna hluti sem eru mikilvægir og hann nefndi að hv. nefnd ætti að skoða það og ég get tekið undir það, það eru líka miklir möguleikar þegar kemur að þessum mörkuðum. Jónas Fr. Jónsson leiddi hóp sem kom með skýrslu sem var kynnt rétt fyrir kosningar, sem er mjög mikilvægt að nota. Það er þannig að það eru möguleikar fyrir líka bændur og landeigendur á Íslandi að selja kolefniseiningar og fjármagna þar ýmislegt sem heyrir undir landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis, en fólk veit ekki af þessu. Ég veit að hv. þingmaður brennur fyrir mörgu, hann brennur fyrir landsbyggðinni og hann brennur fyrir bændur. Þetta er auðvitað eitthvað sem fór ekki mjög hátt af því að það komu allt í einu kosningar eins og menn muna og erfitt að halda þessu á lofti.

Það er alls ekki sama hvernig við höldum á þessum málum. Það er rétt sem hér hefur komið fram að bara þessar svokölluðu alræmdu upprunaábyrgðir hafa skilað gríðarlegum tekjum, tugum milljarða, 30 milljörðum til íslenskra orkufyrirtækja. Ég vona að það verði, þegar við förum í orkuskiptin, það sem hv. þm. Jens Garðar Helgason benti á, að það verði að fara saman að menn búi til græna orku ef þeir ætla að fara að nýta græna orku í orkuskiptin. Það er stórt og er mikilvægt en líka minni hlutir og ég vonast til þess að sú vinna haldi áfram að við förum að nýta smávirkjanir og leyfa aðilum sem framleiða orku að selja inn á kerfið. Það þarf ekki að vera stórt, það getur verið burtorka, það geta verið litlar vatnsaflsvirkjanir. Ég minni á það að árið 1950 voru 500 smávatnsaflsvirkjanir á landinu. Hér sé ég hv. þm. Karl Gauta Hjaltason, við erum nú sveitungar í sveit sem heitir Skaftártunga, þar voru þær nú margar enda var Bjarni á Hólmi forvígismaður um að byggja smávirkjanir, dó langt fyrir aldur fram, hann bjó til um hundrað og var mjög öflugur á því svæði. Í þessu eru gríðarlega mörg tækifæri. Við Íslendingar erum gott dæmi um að það er skynsamlegt að nýta heimorkuna, grænu orkuna og við höfum svo sannarlega ekki tapað á því, það hefur bara nýst okkur vel. Út á það gengur málið, að minnka losun sem kemur af jarðefnaeldsneyti og setja græna orku í staðinn.

En í þessu máli, virðulegi forseti, þá er margt sem bendir til þess, kannski flest, að hér sé um að ræða reglugerðir sem muni flækja og gera hlutina erfiðari og þar af leiðandi kostnaðarsamari fyrir atvinnulíf og almenning í landinu og við eigum að skoða það gaumgæfilega. Ég er ekki að gera neinar athugasemdir við framsöguræðu hæstv. ráðherra, en mér fannst ekki vera skýrt og mér finnst ekki vera skýrt af lestri greinargerðarinnar hvað það er sem vinnst við það að samþykkja þetta frumvarp og fara í þessa innleiðingu. Það eru rök, virðulegi forseti, að við getum sagt: Við höfum áhyggjur af þessu og við erum að vinna í því að reyna að einfalda hlutina eins og er opinber stefna Evrópusambandsins. Það er alla vega stefnan. Þeir eru nýbúnir að koma með skýrslu sem dregur það skýrt fram að Evrópusambandið hefur verið á miklum villigötum sem hefur skaðað samkeppnishæfni þjóðanna í álfunni og sérstaklega þeirra þjóða sem eru inni í Evrópusambandinu. Sem betur fer, virðulegi forseti, erum við ekki þar og guð gefi að við förum aldrei þangað inn.