156. löggjafarþing — 13. fundur,  11. mars 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

145. mál
[17:40]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Af því að hann vísaði til mín þá hefur afstaða mín í þessum málum ekkert breyst og allra síst í þessu, og hæstv. ráðherra getur alveg fengið upplýsingar um það ef hann hefur áhuga á því. Staðan er bara sú að við þurfum alltaf og í öllum málum að líta til þess að við séum að gæta hagsmuna Íslands og í þessu tilfelli eru hagsmunirnir að hafa náð árangri í málaflokknum en þó með eins litlu og einföldu og skilvirku regluverki og mögulegt er. Vandinn er þessi, af því að hæstv. ráðherra sagði að það væri metið að þetta myndi hjálpa til við að ná árangri, þ.e. í beinni ábyrgð Íslands — ég hef bara aldrei heyrt þá röksemdafærslu. Það gengur ekkert illa hjá okkur, það er ekki þannig. Við munum að öllu óbreyttu ná þessu 2030 eða 2031 eða 2032, það fer bara eftir því hvernig menn stilla það af. Þetta gengur að stærstum hluta út á það og því sparneytnari sem fiskiskipin eru því stærri eru stökkin, og það hefur gengið vel fram til þessa. Því fleiri rafbílar sem eru, því betur gengur. Og við höfum haft fyrirkomulag sem gengur prýðilega, þrátt fyrir að menn hafi dregið útgjöldin verulega saman hvað það varðar. Kælibúnaðurinn, F-gösin — það hefur bara gengið mjög vel og urðun úrgangs, þó að það komi ekki fram núna, mun koma fram út af þeim aðgerðum sem skila munu miklu á næstu árum. Ég er líka þeirrar skoðunar, svo að ég ítreki það, að útblástur frá jarðvarmavirkjunum eigi ekki að vera inni í beinni losun okkar. En það er annað mál. En ég hika ekkert við að gera það sem ég hef gert fram til þessa, og gerði sem ráðherra, að hafa áhyggjur af þessari innleiðingu.