156. löggjafarþing — 13. fundur,  11. mars 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

145. mál
[17:44]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Forseti. Hæstv. ráðherra beinir til mín fyrirspurn sem er auðvitað pínu svindl en ég geri engar athugasemdir við það. Stutta svarið er: Já, þetta var rætt hvað eftir annað og farið mjög vel yfir þetta og reynt að finna einhverjar lausnir á því sem væru eins skaðlausar og mögulegt er og líka að átta sig á því, sem var mitt upplegg og er enn, hvað við fengjum út úr þessu, hvað væri í þessu. Öll umræðan hér — auðvitað eru margir nýir aðilar komnir að málinu sem eru kannski ekkert vel inni í því. En ég skal viðurkenna það að þegar maður horfir á þetta þá veltir maður fyrir sér: Hvað er í þessu sem hjálpar til við að ná þessu markmiði með beina ábyrgð Íslands? Hæstv. ráðherra er búinn að segja aftur og aftur: Þetta mun hjálpa. Ég bara sé það ekki, þekki málaflokkinn samt eitthvað pínulítið, hef eitthvað aðeins komið að honum. Ég veit alveg hvað þarf að gera til að minnka losun Íslands og sveigjanleikaákvæðin eru þarna til staðar af ástæðu. Það þarf enginn að skammast sín fyrir að nota sveigjanleikaákvæðin. Það er skynsamlegt fyrir okkur að leggja mikið í landgræðslu og skógrækt, sem við hefðum gert hvort heldur sem er, og endurheimt votlendis; við getum notað þau sveigjanleikaákvæði þar. Ég notaði kannski svolítið óhefðbundnar aðferðir líka í minni tíð sem utanríkisráðherra af því að mér finnst að við eigum ekki að nálgast þetta þannig að við séum komin fram yfir síðasta söludag þegar kemur að þessu.

Evrópa er öll í þessum vandamálum út af reglugerðarfargani ESB, við höfum komið okkur í ýmis vandræði. Stundum er það þannig að aðilar sjá ekki nákvæmlega vandann sem síðan kemur upp. Menn eiga þá ekki að segja: Æ, síðasti söludagur er liðinn. Ég ætla ekkert að koma að því hverjum þetta var að kenna eða hver sagði hvað. Spurt er: Var þetta rætt? Stutta svarið er: Já. Milli ráðuneyta, í ríkisstjórn? Já, það var gert.