156. löggjafarþing — 13. fundur,  11. mars 2025.

stefna í neytendamálum til ársins 2030.

149. mál
[17:50]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030, á þskj. 154, 149. mál. Tillaga með þessu sama heiti og að langmestu leyti sama efni var lögð fram á 155. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er lögð áhersla á öfluga neytendavernd og þessi þingsályktunartillaga er í samræmi við þær áherslur á sviði neytendamála sem er að finna í stefnuyfirlýsingunni. Mig langar til að vísa í framtíðarsýnina hér í upphafi sem fram kemur í tillögunni, með leyfi forseta:

„Á Íslandi verði traust umgjörð neytendamála sem stuðli að virkri samkeppni og veiti neytendum vernd og nauðsynlegar upplýsingar til að geta tekið upplýstar ákvarðanir, um leið og óréttmætum viðskiptaháttum er mætt af festu.“

Neytendamál hafa víðtæka skírskotun til samfélagsins og atvinnulífsins og mikilvægt er að til staðar sé skýr stefnumótun á því málefnasviði, ásamt aðgerðaáætlun til næstu ára. Sú stefnumótun sem hér er lögð fram og aðgerðaáætlun hennar taka mið af því.

Á undanförnum árum hefur verið unnið að ýmsum breytingum á sviði neytendamála með það að markmiði að bæta löggjöf á því sviði, auka neytendavitund og styrkja stöðu neytenda. Að sama skapi eru mörg verkefni fram undan. Sum eru komin í vinnslu, önnur á leiðinni og hafa þetta að markmiði. Löggjöf á sviði neytendamála hefur að stærstum hluta það markmið að leiðrétta aðstöðumun sem er milli fyrirtækja og almennings, þ.e. neytenda, bæði almennt og vegna einstakra viðskipta. Í því felst m.a. að vernda neytendur gegn óréttmætum viðskiptaháttum fyrirtækja, upplýsa neytendur og veita þeim skilvirk úrræði til að leita réttar síns.

Sú þingsályktunartillaga sem ég mæli hér fyrir er efnislega þrískipt. Í fyrsta hluta hennar er lýst framtíðarsýn ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins í neytendamálum á Íslandi, eins og ég tiltók hér áðan. Hún er sú að á Íslandi verði traust umgjörð neytendamála sem stuðli að virkri samkeppni og veiti neytendum vernd og nauðsynlegar upplýsingar til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um leið og óréttmætum viðskiptaháttum er mætt af festu. Í öðrum hluta tillögunnar kemur síðan fram að meginmarkmið stefnu í neytendamálum sé að tryggja þessa framtíðarsýn til lengri tíma og í því skyni verði unnið að þeim aðgerðum og áherslum sem koma fram í þingsályktunartillögunni í samráði við helstu hagsmunaaðila. Í þriðja hluta tillögunnar er síðan lögð fram aðgerðaáætlun sem lagt er til að unnið verði eftir til að vinna að framgangi stefnunnar, tryggja framganginn til 2030. Þar koma fram níu skilgreindar aðgerðir með ábyrgðaraðilum og samstarfsaðilum.

Ég ætla að leyfa mér að telja þessar umræddu níu aðgerðir hér upp og að hvaða þáttum þær lúta. Það er endurskoðun löggjafar til að efla neytendavernd, stofnanaumgjörð neytendamála, áhersla á netviðskipti og stafvæðingu á sviði neytendamála, græn umbreyting í neytendamálum, aukin neytendavernd á sviði fjármálaþjónustu og áhersla á fjármálalæsi, aukin neytendavernd við fasteignakaup, áhersla á íslensku við markaðssetningu vöru og þjónustu, neytendavernd viðkvæmra hópa og áhersla á rannsóknir, upplýsingagjöf og fræðslu til að auka neytendavitund.

Nokkrar aðgerðir undir þessum flokkum eru þegar komnar í framkvæmd að einhverju leyti en aðrar eru í mótun og undirbúningi. Sem dæmi um aðgerðir sem þegar eru hafnar má í fyrsta lagi nefna vinnu við frumvarp til nýrra markaðssetningarlaga sem stefnt er á að leggja fram á Alþingi næsta haust og felur í sér almennar lagalegar úrbætur til eflingar neytendavernd. Í öðru lagi má nefna úrbætur á sviði fasteignaviðskipta með ástandsskýrslum fasteigna sem kallar á lagabreytingar sem er áformað að leggja fyrir Alþingi í haust. Í þriðja lagi endurskoðun á stofnanafyrirkomulagi neytenda- og samkeppnismála með styrkingu viðkomandi málaflokka að leiðarljósi en þau mál eru til frekari skoðunar í ráðuneytinu.

Verði sú þingsályktunartillaga sem ég mæli hér fyrir samþykkt er ráðgert að hún hafi minni háttar kostnað í för með sér vegna aukinna verkefna hjá Neytendastofu en það er almennt innan ramma og kallar ekki á ný útgjöld af hálfu ríkissjóðs.

Tillaga þessi til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030 var unnin innan ráðuneytisins að höfðu samráði við helstu haghafa. Drög að tillögunni voru lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda og bárust tíu umsagnir sem almennt voru jákvæðar.

Virðulegi forseti. Ég tel að hér sé um brýnt þingmál að ræða og að það sé mikilvægt að til staðar sé heildstæð stefnumótun stjórnvalda í þessum málaflokki sem er studd með skilgreindri aðgerðaáætlun til næstu ára. Slík stefna er fallin til þess að leggja grunn að frekari aðgerðum og lagabreytingum sem og auknu samstarfi milli stjórnvalda, hagsmunaaðila og samtaka á þessu sviði, neytendum í landinu til hagsbóta.

Að lokinni umræðu hér í þingsal legg ég til að þingsályktunartillögunni verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til umfjöllunar.