skipan upplýsingatækni í rekstri ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra bara beint varðandi Microsoft-samninginn, hvort hann kannist við þá annmarka sem hafa verið við innleiðingu á því þannig að þeir sem hafa verið að nota sama Microsoft-leyfið hafi allt í einu séð gögnin hver hjá öðrum. Eru dæmi um það að einhverjar opinberar stofnanir eða ráðuneyti séu farin að reyna að komast út úr þessu? Ég spyr hvort ráðherra þekki þetta mál og hvort það sé þá komin einhver lausn á því. Er það að einhverju leyti hluti af þessu frumvarpi að leysa þann vanda sem þar er upp kominn?