Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í nýliðinni kjördæmaviku heimsótti þingflokkur Viðreisnar hluta Norðvestur- og Suðurkjördæma. Í þeim heimsóknum var komið víða við og gott að heyra og finna baráttuhug í íbúum á þessum svæðum. Sá er hér stendur var að koma í fyrsta skipti á Kvíabryggju og Litla-Hraun og það verður að segjast eins og er að heimsóknin á þessa tvo staði situr enn í mér. Ég ber ómælda virðingu fyrir starfsfólki Fangelsismálastofnunar sem starfar í þessu erfiða umhverfi við mjög krefjandi aðstæður. Kvíabryggja var tekin í notkun fyrir refsifanga árið 1963 og hefur auðvitað fengið andlitslyftingu, en betur má ef duga skal. Sama má segja um Litla-Hraun, sem tekið var í notkun sem fangelsi árið 1929 og hefur verið byggt við það nokkrum sinnum. En þar eru aðstæður langt frá því að vera boðlegar fyrir starfsfólk og vistmenn. Þá fengum við einnig ábendingu um að skoða þurfi aðstæður fangelsisins að Sogni. Það kom fram í kynningum að Fangelsismálastofnun hefur mætt miklum áskorunum í sínum rekstri og það er ljóst að fara þarf í stórar fjárfestingar í málaflokknum, m.a. vegna nýs fangelsis á Stóra-Hrauni þar sem fangelsið á Litla-Hrauni er úr sér gengið og stenst ekki nútímakröfur. Í því samhengi má benda á skýrslur eftirlitsaðila um aðbúnað fanga. Við verðum að átta okkur á því að hópur fanga í dag er mun fjölbreyttari en áður. Þar spilar inn í fjöldi þjóðerna, kyn og geðræn vandamál. Stækkun fangelsanna kallar óneitanlega á fjölgun fangavarða og sérfræðinga sem geta sinnt lögbundinni þjónustu við dómþola og það er að sjálfsögðu áskorun fyrir reksturinn.
Frú forseti. Það má ekki gleyma þeim framfaraskrefum sem stigin hafa verið í þessum málaflokki og ber að fagna nýju fangelsi á Hólmsheiði sem tekið var í notkun 2016, en það eru tæp tíu ár síðan. Ég styð hæstv. dómsmálaráðherra, sem fer fram með metnaðarfullar hugmyndir um nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni, til góðra verka í þessum málum. En ef við viljum að fangelsin okkar standi undir nafni sem betrunarstofnanir þá verðum við að gera betur. Starfsfólkið okkar og vistmenn eiga betra skilið.