Störf þingsins.
Herra forseti. Mig langar að biðja þingheim að hugleiða aðeins frelsið. Við eigum öll ólíka reynsluheima og ólíkar sögur. Sumir eru svo lánsamir að búa við nánast óskert frelsi, rekast sjaldan á þröskulda vegna útlits, uppruna, kynhneigðar eða kynvitundar, fólk sem finnur ekki fyrir áreiti í sínum hversdegi, á meðan aðrir búa við ólíkan veruleika. Setjum þetta aðeins í samhengi. Flestir hv. þingmenn bóka utanlandsferðir með makanum sínum eða vinnuferðir án þess að þurfa að liggja yfir leitarvélum til að ganga úr skugga um hvort landið sé hreinlega öruggt fyrir þau, á meðan hinsegin pör eða einstaklingar þurfa alltaf að athuga þetta fyrst enda eru sum lönd beinlínis lífshættuleg fyrir þennan hóp og viðurkenna jafnvel ekki tilvist hans. Steingerður Lóa Gunnarsdóttir vakti athygli á því á dögunum að hún þurfti að hætta skyndilega við ráðstefnuferð Bandaríkjanna vegna þess að undir stjórn Trumps var gefin út reglugerð sem girðir verulega fyrir að trans fólk komist öruggt til Bandaríkjanna. Á sama tíma voru hv. þingmenn og hæstv. dómsmálaráðherra stödd í New York á kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna. Þangað komust þau óhindrað, án umhugsunar.
Forseti. Þegar jaðarsettir hópar biðja um að fá pláss eða réttindi þá snýst það bara um það, að öðlast frelsi — og þá sama frelsi og hinir, ekki meira heldur bara það sama. Þess vegna hvet ég fólk sem hefur þetta frelsi og gengur óhindrað inn í öll rými að líta sér nær áður en það úthrópar baráttu þessara hópa, sem stöðugt rekast á veggi eða þröskulda, sem vandamál eða ógn í samfélaginu. Í því felst mikil ábyrgð og forréttindablinda. (Forseti (ÞSv): Heyr, heyr.)