156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

Störf þingsins.

[10:48]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Mig langar að ræða mikilvægi frumkvöðla og nýsköpunar fyrir verðmætasköpun á Íslandi. Við lifum nefnilega á tímum hraðra tæknibreytinga þar sem þjóðir sem leggja áherslu á nýsköpun og þróun eru þær þjóðir sem tryggja sér samkeppnisforskot og velsæld til framtíðar. Lítið dæmi frá frændum okkar í Noregi, en eins og við vitum var flest það sem við notum til daglegs brúks eitt sinn búið til af frumkvöðli. Ég ætla að tala aðeins um ostaskerann. Það er nefnilega þannig að árið 1925 bjó norskur frumkvöðull til þetta frábæra tól, ég veit ekki hvort þingheimur vissi það. Ég vissi það ekki fyrr en ég tók við sendiherrastarfi í Noregi um árið. Ostaskerinn fagnar því 100 ára afmæli á þessu ári. En hvers vegna að búa til ostaskera? Það eru nú ýmsar sögur af því. Gárungarnir segja að Norðmönnum hafi þótt stálvírinn, sem notaður hefur verið og er raunar notaður enn sums staðar, skera of þykkar sneiðar. Það þurfti að finna tækni til að skera þær þynnri — sparnaður — og ostaskerinn eins og við þekkjum hann varð til. Síðan er frábært dæmi um íslenska nýsköpun sem hefur náð mögnuðum árangri á heimsvísu, sem er auðvitað Kerecis sem hefur þróað einstaka lækningalausn þar sem notað er fiskroð til að græða sár og hefur það skilað gríðarmiklum verðmætum.

Til þess að nýsköpun blómstri þarf umhverfið að styðja hana. Þess vegna veldur það áhyggjum þegar hagræðingarhópur forsætisráðherra leggur til að hinn nýstofnaði sjóður Nýsköpunarsjóðurinn Kría, sem varð til við sameiningu Kríu og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, verði lagður niður. Röksemdafærsla hópsins er fullkomlega óskiljanleg enda væri slík ákvörðun stórt skref aftur á bak og ég trúi ekki að ríkisstjórn hugnist þessi tillaga og hún hlýtur að kasta henni út. Ef við viljum byggja upp öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf (Forseti hringir.) getum við ekki leyft okkur að veikja nýsköpunarumhverfið með þessum hætti. Við eigum að styðja við nýsköpun með ráðum og dáð, ekki draga úr henni. (Forseti hringir.) Við eigum að tryggja að frumkvöðlar hafi aðgang að þolinmóðu fjármagni og stuðningi. Þannig tryggjum við verðmætasköpun og atvinnu og betri framtíð fyrir okkur öll.