156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

Störf þingsins.

[10:59]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Í dag hófst Íslandsmót iðn- og verkgreina í Laugardalshöll. Mín framtíð er vettvangur þar sem fjöldi ungra einstaklinga mæta til keppni og sýna færni og getu hvert í sinni iðn- og starfsgrein. Keppnin er stór liður í því að vekja athygli á og kynna þau fjölmörgu störf sem iðn- og starfsnám hefur upp á að bjóða. Ef við sem samfélag hefðum ekki þessar greinar þá væri vart hægt að ímynda sér hvernig tækninni hefði fleygt fram því þessi störf skapa samfélaginu gríðarleg verðmæti á hverjum einasta degi. Það er merkilegt að sjá um 160 keppendur úr 19 keppnisgreinum sýna færni sína undir mikilli pressu enda um 10.000 grunnskólanemendur sem mæta í höllina til að fylgjast með og fræðast um þeirra störf. Það má áætla að svipaður fjöldi annarra gesta gangi um keppnissvæðin. Þess má jafnframt geta að sigurvegarar geta í einhverjum tilvikum átt von á að fá boð um þátttöku í sambærilegri keppni í Evrópu en næsta Evrópukeppni fer fram í Danmörku.

Virðulegi forseti, Það þarf vart að ítreka mikilvægi þess að íslenska ríkið, og samfélagið allt, styðji við keppni sem þessa og eflingu iðn- og tæknigreina, enda gríðarlegur ávinningur sem af þeim hlýst. Ég vil hrósa hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, fyrir aðkomu hennar að keppninni og ég vænti þess að íslenska ríkið styðii áfram vel við komandi keppnir. Ég sendi öllum þeim sem standa að keppninni innilegar þakkir — keppendur, sjálfboðaliðar, fulltrúar félagasamtaka, fulltrúar skólanna og öll hin. Ég hvet hv. þingmenn og hæstv. ráðherra að kíkja við í Laugardalshöll í dag og næstu tvo daga og fræðast um iðn- og starfsnám á Íslandi.