Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er mér mikill heiður að taka sæti á Alþingi. Ég ber ómælda virðingu fyrir þessari stofnun og hyggst nýta tíma minn vel á þessum vettvangi sem talsmaður borgaranna gegn hvers konar stjórnlyndi. Í krafti stöðu sinnar er Alþingi ætlað að hafa eftirlit með ríkisstjórninni, ekki eingöngu til að tryggja að stjórnarframkvæmd sé í samræmi við lögin heldur líka til að bæta skilvirkni, árangur og hagkvæmni í verkum ríkisins. Þannig verndum við réttindi borgaranna. Þá skiptir öllu máli að þingheimur sinni lagasetningu af vandvirkni og fagmennsku. Sjálfur hef ég flutt og unnið dómsmál þar sem inngrip ríkisvaldsins hafa verið talin andstæð stjórnarskrá okkar og líkt og Hæstiréttur komst að orði í einu þessara mála er það stjórnskipuleg skylda Alþingis að meta hvort lagasetning hafi áhrif á réttindi borgaranna og rúmist innan þeirra marka sem stjórnarskráin setur.
Því tengt vil ég nefna þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar en nú um miðjan mars er algjör minni hluti stjórnarmála kominn inn á þingið, raunar svo að mál sem átti að leggja fyrir þingið í febrúar samkvæmt eigin áætlun ríkisstjórnarinnar er enn ekki að finna. Ég ætla ekki að agnúast of mikið út í þetta nú heldur frekar hvetja viðkomandi ráðherra til að sýna þinginu þá virðingu að leggja frumvörpin tímanlega fyrir þingið þannig að nægilegt ráðrúm gefist til þinglegrar og faglegrar meðferðar. Að sama skapi sætir sá háttur sem hér hefur tíðkast, að dagskrá þingfunda sé ákveðin og birt með minna en sólarhrings fyrirvara, furðu mína og væntanlega annarra sem komið hafa að undirbúningi og ákvarðanatöku utan hins opinbera. Væri ekki ráð að breyta þessu? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)