156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

Staða efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar.

[11:06]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að taka þessa sérstöku umræðu hér á Alþingi í dag um stöðu efnahagsmála. Við blasa meiri háttar áskoranir í efnahagsmálum, bæði hér heima en ekki síst á alþjóðavettvangi og vegna alþjóðaástandsins má segja að það sé raunar meiri óvissa en við höfum búið við um nokkur ár, bara það sem hefur verið að gerast á síðustu dögum og vikum. Í þessu ljósi er nauðsynlegt að þingið ræði helstu áskoranir en um leið tækifæri sem við stöndum frammi fyrir, sérstaklega þar sem fjármálastefna og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verða væntanlega brátt lagðar fram samkvæmt lögum.

Breytingar á tollumhverfi, líkur á aukinni verðbólgu, áframhaldandi stríðsátök og sveiflur í hrávöruverði skapa krefjandi aðstæður utan frá sem krefjast varfærinnar og markvissrar hagstjórnar. Það blasir við að staða mála er mörkuð mun meiri óvissu en síðastliðið haust. Við verðum því að vera vakandi fyrir því hvernig þessi þróun hefur áhrif á stöðu Íslands í efnahagslegu tilliti og hvernig við getum brugðist við til að tryggja velferð almennings. Samvinna hér innan þingsins og við ríkisvaldið og gegnsæi eru hér lykilatriði.

Spyrja má til hvaða viðbragða og aðgerðaáætlana ríkisstjórnin hefur þegar gripið til vegna hugsanlegra breytinga, til að mynda á tollumhverfinu. Ríkisstjórnin hefur þegar kynnt tillögur um hagræðingu í opinberum rekstri en viðvarandi hagræðing er vitaskuld forsenda sjálfbærra fjármála ríkisins. Fram settar tölur um áætlaðan sparnað voru hins vegar byggðar á veikum grunni og í raun ekki hægt að taka þær trúanlegar. Í þessu ljósi verður áhugavert að sjá hvort tillögur hagræðingarhópsins svokallaða verða settar fram í komandi fjármálaáætlun, hvort búið sé að kostnaðarmeta innleiðingu þeirra og ég spyr hæstv. ráðherra því að þessu. Og voru þessar tillögur tillögur ríkisstjórnarinnar — þær voru kynntar af forsætisráðherra og fjármálaráðherra — eða voru þetta tillögur einhverra annarra? Það er líka aðeins óljóst. Hvað með sölu ríkiseigna? Væntanlega stendur til að selja Íslandsbanka á næstunni þrátt fyrir andstöðu Flokks fólksins, alla vega á síðasta kjörtímabili, í hinni samhentu ríkisstjórn. Stendur það til? Hvað með Isavia? Á síðustu mánuðum mínum í fjármálaráðuneytinu lét ég vinna skýrslu til að fá betri upplýsingar um eignarhald og rekstrarfyrirkomulag á slíku fyrirkomulagi eins og hjá Isavia. Er sú skýrsla komin fram, mér skilst það, og verður hún birt?

Þá er, eins og ljóst hefur verið, talsverð fjárfestingarþörf í innviðum, svokölluð innviðaskuld til margra ára sem kallar á enn markvissari stefnumótun og við hefðum gjarnan viljað setja meiri fjármuni í það.

Eitt af brýnustu verkefnum næstu vikna er að tryggja að aðstæður haldist til frekari vaxtalækkunar. Í ljósi óvissu í alþjóðaviðskiptum eru blikur á lofti. Spurningin er hvort Seðlabankinn treysti sér til að lækka vexti eins hratt og vonir voru bundnar við. Ef vaxtalækkunarferlið dregst á langinn mun það hafa mjög slæm áhrif á fjárhag þúsunda heimila. Það má einfaldlega ekki gerast. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að bregðast við því? Þingið þarf að taka þessa stöðu alvarlega og ríkisstjórnin að sýna á sín spil.

Samkvæmt langtímaáætlun fjármálaráðuneytisins um efnahagsmál sem birt var síðastliðinn mánudag mun minnkandi afgangur af frumjöfnuði næstu ár auka hallarekstur ríkissjóðs og leiða til aukins fjármagnskostnaðar. Þetta eru slæm tíðindi ef við horfum svona langt fram í tímann. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að bregðast við því?

Frá því í haust þá má segja, samandregið, að óvissa hafi aukist. Líkur eru á hækkandi verðbólgu í Evrópu. Vaxtalækkunarferli Seðlabankans kann að seinka. Innviðaskuld okkar eykst stöðugt þegar við bætum ekki enn meira í og sjálfur hæstv. fjármálaráðherra hefur gefið út langtímaáætlun í efnahagsmálum þar sem umtalsverðri óvissu er lýst um stöðu efnahagsmála. Loks hafa hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar mætt mikilli mótstöðu, ekki síst innan ríkisstjórnarinnar sjálfrar.

Við nálgumst tíu ára afmæli laga um opinber fjármál. Lögin hafa gjörbreytt stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Í ljósi tíu ára reynslu og áforma um nýja stöðugleikareglu, sem við í Framsókn styðjum, sem ríkisstjórnin hefur kynnt er tilefni til að ræða hvort ekki sé kominn tími til að meta hvort lögin hafi yfirleitt skilað tilætluðum árangri og hvað megi bæta frá sjónarhóli Alþingis og frá sjónarhóli stjórnkerfisins en síðast en ekki síst frá sjónarhóli almennings. Hefur gagnsæi og agi í ríkisfjármálum aukist? Hefur ráðstöfun fjármagns skilað meiri verðmætum? Hefur stjórnkerfið sett raunhæf og mælanleg markmið, t.d. um gæði þjónustu?

Virðulegi forseti. Skýr stefna og afstaða ríkisstjórnarinnar er nauðsyn. Samstaða Alþingis vegna stöðunnar í alþjóðamálum hefur sjaldan verið eins mikilvæg og nú. Við þurfum skýra samræmda stefnu í efnahagsmálum og aukið gegnsæi (Forseti hringir.) við stjórn ríkisins. Við í Framsókn erum tilbúin í heiðarlegt og málefnalegt samtal um allt ofangreint. Við verðum að standa saman.