Staða efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu hér í dag. Ég vil byrja á að minnast á fund sem við í hv. efnahags- og viðskiptanefnd áttum með seðlabankastjóra eða forsvarsmönnum peningastefnunefndar sem fóru yfir skýrslu sína. Þar kom ítrekað fram góð staða á margan hátt í íslenskum ríkisfjármálum. Það er gott bú sem þessi ríkisstjórn tekur við þrátt fyrir þann fjölda áskorana sem hefur verið hér, þ.e. heimsfaraldur, jarðhræringar, stríð byrjaði í heiminum og svo mætti lengi telja. En hér er hagvöxturinn búinn að vera gríðarlegur, launahækkanir búnar að vera meiri hér heldur en í öllum okkar samanburðarlöndum. En kaupmátturinn hefur líka verið að aukast, þannig að staðan er góð en hana þarf að verja. Það var einmitt komið inn á kjarasamningana sem voru gerðir fyrir um ári síðan og annað slíkt og hvernig ríkisstjórnin kom að því og eins fjárlögin, en þetta fékk góða einkunn.
Nú er komið að nýrri ríkisstjórn sem er komin með sitt plan og ég hlakka til að sjá það í fjármálaáætluninni hvernig þau ætla að viðhalda þessum stöðugleika, viðhalda þessum góða árangri þrátt fyrir þær áskoranir sem eru uppi núna í heiminum. Ég fagna hagræðingarvegferð ríkisstjórnarinnar og mun styðja hana í góðum verkum þar. En þar þarf að stíga miklu stærri skref, sérstaklega þegar ógnir standa svona að okkur um heim allan. Því þarf að fá alvöruhagræðingu; sölu einhverra ríkiseigna, lækka hér skuldirnar svo við séum með betri viðnámsþrótt í okkar samfélagi þegar áskoranirnar sem við erum að sjá hér allt í kringum okkur fara að raungerast ein og ein. Þannig að ég hvet ríkisstjórnina til góðra verka og er tilbúinn með þeim á þær árar að losa hér um eignir til að lækka skuldir og vaxtakostnað ríkisins og hafa einhverja alvöruhagræðingu.