156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

Staða efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar.

[11:31]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka bæði málshefjanda og hæstv. ráðherra fyrir að hefja þessa umræðu sem er mjög svo mikilvægt að fara í því að hún er nú grunnurinn að öllu sem við gerum. Ég hlustaði hins vegar á hvernig stjórnarliðar hafa talað hér um þessi mál. Ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að mér brá nokkuð þegar fullyrt var að hér væri loksins komið ábyrgt fólk. Ábyrgt fólk? Þetta er fólkið sem er búið að stýra Reykjavíkurborg. Eigum við að ræða þau fjármál? (Gripið fram í.)— Og eigum við að ræða þau mál? En ég skil að það sé verið að sverja af sér Reykjavík. Það er galað héðan úr salnum, það vill enginn kannast við að hafa stjórnað þeirri borg.

Svo er það nú þannig að auðvitað eru stjórnmál ekkert sanngjörn. En að koma hér fram og tala eins og það hafi ekki orðið neinn alheimsfaraldur eða jarðhræringar og að það hafi ekki haft nein áhrif á ríkisfjármálin, það er ótrúlegt. Ég vek athygli á því að þetta fólk sem er núna að stýra sagði ákveðna hluti við þáverandi stjórn. Hvað var það? Gangið lengra, setjið meiri peninga. Þið gerið ekki nóg. Það voru skilaboðin. Hvernig væri staðan þá? Staðreyndin er þessi að menn taka við góðu búi en verkefnin eru auðvitað ærin. Það er sorglegt þegar menn blása í herlúðra hagræðingar, koma svo með tillögur sem þau hafa farið hér yfir, sem eru hvorki fugl né fiskur. En það er þó ein tillaga sem var svona frekar góð og algerlega nauðsynleg til að ná árangri, þ.e. að taka á lögum um opinbera starfsmenn. En henni var slátrað bara eftir fyrsta viðtal hjá hæstv. forsætisráðherra.

Síðan er áhugavert að hæstv. ráðherra talaði hér um sjávarútveginn, hvað hann þyldi vel ýmis áföll. (Forseti hringir.) En hvað ætlar hæstv. fjármálaráðherra að gera í sjávarútveginum? Hann ætlar að fara (Forseti hringir.) og stórefla smábátaútgerð. Ég man bara ekki hvaða orð hæstv. ráðherra hafði um (Forseti hringir.) það áður en hann settist í þennan stól, en hæstv. ráðherra rifjar (Forseti hringir.) það kannski upp fyrir okkur því að ég held að það vanti fullt af peningum og miðað við það sem hæstv. ráðherra sagði áður (Forseti hringir.) en hann varð ráðherra þá mun þetta ekki skila neinu.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörkin sem eru tvær mínútur í þessum dagskrárlið.)