Staða efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar.
Forseti. Það þarf traustatök til að taka á efnahagsmálum núna. Hér kemur hver fyrrverandi stjórnarliðinn af öðrum og talar um að taka við góðu búi en það bú einkenndist af hallarekstri ár eftir ár og það eru ekki bara einhver hugtök sem við notum í stjórnmálum. Ef við horfum bara á áhrifin af hárri verðbólgu og hallarekstri ríkisins á venjuleg heimili þá blasa þau ekki síst við á húsnæðismarkaði. Vaxtastigið í landinu hefur leitt til þess að þrátt fyrir undirliggjandi eftirspurn eftir íbúðum hafa aldrei verið jafn margar íbúðir óseldar, til sölu á markaði. Það hefur sjaldan verið jafn mikið hik á verktökum að fara af stað með ný verkefni. Ofurvextir á framkvæmdatíma eru að leiða til þess að byggingarkostnaður hefur hækkað alveg gríðarlega. Verst er staða ungs fólks og þeirra sem ekki eiga sterka bakhjarla til að taka fyrstu skrefin inn á húsnæðismarkað og þess vegna er það eitt lykilverkefni nýrrar ríkisstjórnar að sýna traustatök, ná niður verðbólgu og ná niður vöxtum. Núna í febrúar hafði verðbólga góðu heilli aldrei mælst lægri í fjögur ár. Það er tiltrú á ríkisstjórninni, ekki bara í þessum sal heldur út á markaðnum, hjá peningastefnunefnd, eins og kom fram hér fyrr í vikunni, og það veitir ekki af vegna þess að það eru viðsjár í heiminum. Við erum að fara að innleiða stöðugleikareglu en Evrópa var að setja sína út fyrir sviga á fimmtudaginn vegna varnarmála. Við þurfum að halda vöku okkar í þessum sal og líka hjá (Forseti hringir.) þeim sem taka núna við fjármálaáætlun og fjármálastefnu og undirstrika að hér verður horft til lengri tíma og hér verður tekið á málum af festu.