Staða efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Þau voru mörg umræðuefnin í uppleggi málshefjanda og eitt af þeim var reynslan af lögum um opinber fjármál og fjármálaáætlun. Mín skoðun á þessu er að fjármál ríkisins eins og þau birtast okkur þingmönnum eru of flókin og ógagnsæ. Þetta kerfi þarf að einfalda. Síðan er annað umræðuefni hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar. Það verður að taka þær alvarlega og bæta um betur, miklu betur. Það er auðvitað ekki góður bragur á því ef einstaka ráðherra tekur upp á því að falla jafnharðan frá ágætum tillögum í þessum pakka sem kom upp úr þjóðardjúpinu. Aðhald verður að sýna í ríkisfjármálunum. Það er grundvallaratriði. Ríkisstjórnin hefur sagst ætla að hagræða en lítið hefur enn þá komið hér inn á okkar borð í þinginu. Aðhald hefur lykiláhrif á vexti til framtíðar, til lækkunar á vöxtum á næstu mánuðum og það er það sem hefur mest áhrif á fjárhag heimilanna.
Við stöndum frammi fyrir mörgum öðrum ógnum. Innviðaskuldirnar, við höfum rætt um þær, samgöngur, flutningskerfi raforku o.s.frv., náttúruvá, aflabrestur, miklar skuldir ríkissjóðs og mikil vaxtabyrði, óöryggi í alþjóðamálum o.s.frv. Atvinnuvegirnir sem skila okkur gjaldeyristekjum, sjávarútvegur, ferðamennska, ýmis iðnaður og landbúnaður — það er nauðsynlegt að búa atvinnulífinu stöðugleika í skattheimtu. Ríkisstjórnin verður að standast freistinguna að koma á nýjum sköttum og gjaldtökum. Nauðsynlegt er að standa með atvinnuvegunum og gera þeim kleift að starfa og hækka ekki álögur á þá. Það er því afskaplega mikilvægt að við hér á þingi stöndum saman að því að stefna að þessum markmiðum um skynsamlega hagræðingu í ríkisrekstri, forðast frekari álögur á fólk og fyrirtæki og um leið og svigrúm skapast að fara jafnframt í kröftuga uppbyggingu á nauðsynlegum innviðum í landinu. (Forseti hringir.) Ef rétt er á spilum haldið er tækifæri til þessa. Um það er ég sannfærður.