Staða efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar.
Forseti. Ég vil þakka þingmönnum fyrir, svo ég vitni nú í hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson, að mestu leyti málefnalega umræðu. Ég hygg að skynsamlegt hefði verið að þessi umræða hefði verið boðuð í upphafi kjörtímabils þarsíðustu ríkisstjórnar vegna þess að samstaða virðist hafa verið milli stjórnarflokkanna þá, ef dæma má af umræðunni í dag, um að aðhalds væri þörf sem þó var aldrei beitt. Ég fagna því hins vegar að við fáum þær athugasemdir á okkur í dag og ekki stendur á okkur að framkvæma.
Varðandi tillögur hagræðingarhóps sem hér hafa verið ræddar þá er það auðvitað bara hluti af þeim tillögum sem mun koma fram í fjármálaáætlun um aðhald. Varðandi spurningar um áform um frekari sölu eigna en sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka þá eru engin slík áform uppi.
Hvað varðar góða stöðu þá á Ísland það vafasama met að hafa verið með dýrustu og lengstu Covid-aðgerðirnar sem enduðu í gríðarlegri uppsveiflu, sem að jafnaði er kallað þensla, og verðbólguskoti. Ég geri mér grein fyrir því að það að sjá slíkt eftir á er umtalsvert mikið auðveldara en að sjá það fyrir fram. Það breytir því ekki að þessar aðgerðir urðu okkur dýrkeyptar og það að þær hafi kostað 100 milljörðum minna en stóð til er fagnaðarefni.
Það er mjög jákvætt að alþingismenn séu almennt þeirrar skoðunar að styðja beri það markmið ríkisstjórnarinnar að sýna aðhald í rekstri ríkisins. Ég fagna mjög þeim stuðningi sem hér hefur verið lýst yfir og mun leggja mig fram um það að standa undir væntingum.