bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir afbragðsræðu og skemmtilega. Ég er kannski ekki með beinharða spurningu, mig langaði samt bara að eiga samræður og ræða það sem hv. þingmaður nefndi. Það kemur fram í greinargerð að við skilgreinum bókmenntastefnuna mjög vítt. Við nefnum sérstaklega fagurbókmenntir, afþreyingarbókmenntir, ástarsögur, ljóð, bækur um vísindi, laust mál og bækur og skáldskap sem fjallar um hvað eina. Það er vissulega rétt að það er ekki sérstaklega talað um leikbókmenntirnar og þær eru kannski ekki alltaf gefnar út með hefðbundnum hætti á prenti en þær eru gefnar út bara með því að flytja þær í leikhúsum og þannig eru þær auðvitað hluti af þessu. Og þegar kemur að sagnaarfinum þá tek ég alveg heils hugar undir; hann einkennir náttúrlega að mörgu leyti menningu okkar Íslendinga í gegnum aldirnar. Við gerum honum skil líka og höfum hann til hliðsjónar þegar við erum að skrifa þetta. Það er rétt að nefna að kollegi hv. þm. Jóns Gnarrs, Ari Eldjárn, fékk einmitt íslenskuverðlaun Jónasar Hallgrímssonar á síðasta ári, sem er auðvitað vitnisburður um það að þetta sé líka hluti af íslenska arfinum og bókmenntunum. Ég held að það væri samt alveg bara prýðileg hugmynd að allsherjar- og menntamálanefnd myndi taka eitthvað af þessum vangaveltum hv. þingmanns upp og það er alveg einfalt mál í þinglegri meðferð að bæta því inn og skilgreina þetta betur. Ég myndi fagna því a.m.k.