156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.

144. mál
[12:24]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og fagna því að við finnum leiðir til að auka vægi og bókmennta sem eru ekki í bókum. Ég hitti einu sinni forseta PEN-samtakanna sem var staddur hérna á Íslandi, átti fund með honum. Ég var þá borgarstjóri. Mér datt í hug að spyrja hann hvort hann væri með einhver ráð fyrir okkur til að efla lestrarkunnáttu. Þetta var sem sagt John Ralston Saul, þáverandi formaður. Hann sagði að það sem hann teldi bestu leiðina til að efla lestrarkunnáttu og lesskilning barna væri að láta þau lesa leikrit. Mér hafði aldrei dottið þetta í hug en mér fannst þetta algerlega heillandi hugmynd. Og núna þegar við erum að streða við að kenna börnum að lesa og lestrarkunnáttu fer aftur, hvað með að prófa aðferðir eins og að láta þau lesa saman Dýrin í Hálsaskógi og fá að vera persónur, eða jafnvel einhverjar teiknimyndir?