bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans góðu orð. Ég vil alls ekki að það sé misskilið en mér finnst þessi stefna mjög góð og ég fagna henni mjög mikið. Og ég fagna umræðu um verk hinna skrifandi stétta, hvernig þau eru fram sett og hvernig um þau er rætt. Það er líka varðandi áhersluna á hina hina munnlegu geymd, þar sem er, finnst mér, mjög athyglisverð vinna í gangi núna, t.d. í fræðasamfélaginu, eins og hjá Árnastofnun, þ.e. að endurvekja munnlegu geymdina og hljóðmyndina, hvernig tungumálið okkar hljómaði hér í eina tíð. Og síðan þessi skilningur og hvernig við metum það t.d. að lesa. Nú er ég með skilgreinda lesblindu, sem kallað er, og ég hlusta á bækur, ég á auðveldara með að hlusta á bók með eyrunum. En ég les hana með eyrunum. Ég les hana með eyrunum á sama hátt og ég les hana með augunum. Þannig að ég sé engan mun á því að hlusta á bók eða lesa bók, það er sami lesturinn. Og taugavísindarannsóknir, mælingar á heilastarfsemi fólks sem er að hlusta eða lesa bók sýna að það er enginn munur. Það er bara vísindaleg staðreynd.