bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil líka taka undir þakkir til hæstv. ráðherra fyrir að koma fram með þessa þingsályktunartillögu hér sem er endurflutt, hafði komið hér fram áður hjá fyrrverandi ríkisstjórn og við tókum þá til meðferðar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd en náðum ekki að afgreiða.
Ég ætla að byrja á því að segja að ég held að það sé að mörgu leyti góð stefna sem fyrrverandi hæstv. menningarmálaráðherra tók upp, að koma hér með inn í þingið stefnumörkun um ákveðna listgreinar. Það gefur stefnumörkuninni aukið vægi og gefur þingmönnum tækifæri til að koma að slíkri stefnumörkun. Hættan við þá sömu aðferðafræði er að stefnumörkunin talar auðvitað sérstaklega inn í þann hagsmunahóp eða til þeirra sem eiga mikið undir viðkomandi listgrein og þeir kunna kannski að túlka það sem hér stendur sem svo að það séu eins konar lög og það komi í kjölfarið, en það er auðvitað ekki alltaf þannig. Þannig að ég beini því til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að fara vel yfir textann svo það séu örugglega ekki einhverjar falskar væntingar eða vonir hjá viðkomandi aðilum í viðkomandi listgrein til þess sem hér kemur fram.
Eitt af því er það sem hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir kom ágætlega inn á varðandi það að hér er í lið 4 talað um mat á kostum fastverðsfyrirkomulags fyrir bóksölu. Nú þekki ég það vel að Rithöfundasambandið hefur mælt með þessari leið og fleiri í þessum geira hafa gert það sama. Ég tek undir það sem fram kom í máli hv. þingmanns að ég óttast að það sé mikið mikil afturför ef við færum þá leið. En á sama tíma hef ég mikinn skilning á þeirri miklu áskorun sem uppi er hjá rithöfundum á Íslandi. Við erum auðvitað örmálsvæði þannig að ég skil að það sé horft til allra þátta, allra leiða sem gengið hafa vel erlendis og ég get alveg skilið að hæstv. ráðherra vilji taka samtal við viðkomandi aðila og skoða þann möguleika. En það er ekki endilega þar með sagt að það þurfi að koma fram í þingsályktun í sjálfu sér. Mín afstaða hefur verið sú að ég væri neikvæð fyrir slíku fyrirkomulagi en alltaf er ég tilbúin að hlusta á rök þeirra sem tala fyrir því og hef ég ekkert á móti því að það sé skoðað sérstaklega í ráðuneytinu. Ég ítreka bara að það þarf kannski ekki endilega að koma fram í þingsályktunartillögu og væri ég ekki endilega hlynnt því að slíkt væri sett á.
En það sem mig langaði að koma sérstaklega inn á varðar sérstaklega börn og ungmenni, en mér finnst kannski að það mætti líka fara út fyrir þann ramma og það varðar bókasöfnin. Það er fjallað sérstaklega um skólabókasöfn og það er mikið og gott. En mér fyndist alveg að það mætti vera líka umræða um bókasöfn almennt sem eru orðin einhvers konar menningarmiðstöðvar og við sjáum alveg ofboðslega flott dæmi um slíkt, bæði í Reykjavík og í nágrannasveitarfélögunum, þótt ég átti mig á því að auðvitað eru þessi söfn mismunandi eftir stærð sveitarfélaga og því bolmagni sem þau hafa í þetta.
En að því sögðu þá ætla ég líka að fara hérna í punkt nr. 10 varðandi þýðingar á bókum fyrir börn og ungmenni og þá langar mig líka að höfða til hæstv. ráðherra, sem er líka samstarfsráðherra Norðurlandanna. Það er nefnilega svo að árlega veitir Norðurlandaráð viðurkenningar. Það er bæði tilnefnt til bókmenntaverðlauna og barnabókaverðlauna og svo er einhver sem hlýtur þessa viðurkenningu. Þetta eru oft ofboðslega mikil og flott verk og markmiðið með þessu er að hvetja til þess að þau verði þýdd og gefin út á hinum Norðurlöndunum. En því miður er á því mjög mikill misbrestur. Ég held að það væri mikil ástæða til þess að fara í samtal við bókaútgefendur um það hvað hægt væri að gera til að tryggja enn frekar að alla vega þær bækur sem hljóta þessi verðlaun hljóti líka þann heiður að vera þýddar á hin Norðurlandatungumálin og gefnar út. Það er meira að segja þannig að Vestnorræna ráðið hefur líka annað hvert ár tilnefnt og veitt verðlaun fyrir barna- og ungmennabókmenntir og þar fara auðvitað lönd sem eru á algjörum örmarkaði með örmálsvæði. Þegar því var komið á þá átti það í rauninni að vera hlutverk ráðuneytanna að reyna að tryggja það að þessar bækur yrðu gefnar út á hinum vestnorrænu löndunum. Ég nefni þetta sérstaklega vegna þess að ég veit að það hefur verið til umræðu hjá Vestnorræna ráðinu að breyta þessari viðurkenningu með einhverjum hætti eða leggja hana af eða gera þetta með einhverjum öðrum hætti því að markmiðið virðist ekki vera að nást. Ég vildi fá að koma hér upp og benda hæstv. ráðherra á þetta því að ég held að með því að tryggja það að þessar bækur yrðu þýddar þá gætum við einmitt náð hluta af þeim árangri sem þarna er nefndur, að auka þýðingar á bókum fyrir börn og ungmenni. Og mikið færi vel á því að það væri þá sérstaklega horft til norrænna, og ég tala nú ekki um vestnorrænna bókmennta í því samhengi.