fullgilding á bókun um breytingu á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Chile.
Virðulegur forseti. Ég kem hér fyrst og fremst í þessa stuttu ræðu til að þakka fyrir gott samstarf í nefndinni um fullgildingu á þessum fríverslunarsamningi eða uppfærslu á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Chile sem hér er til síðari umræðu. Ég vil þakka sömuleiðis framsögumanni nefndarálits, hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fyrir hennar framsögu í málinu. Ef ég reifa það mál frekar þá eru ákveðin viðskipti milli EFTA-ríkjanna og Chile og með þessari uppfærslu á þessum fríverslunarsamningi er gengið lengra í því að opna þau viðskipti og liðka fyrir þeim enn frekar og síðan er auðvitað bara um að ræða ákveðna eðlilega uppfærslu á fríverslunarsamningi í takt við þær stefnur sem ríkja í þeim efnum og munu vonandi halda áfram að vera ríkjandi.
Það er gleðilegt frá því að segja að þessi fríverslunarmál hafa farið vel í gegnum okkar hv. utanríkismálanefnd og það má skynja almenna velvild nefndarinnar í garð þess að afgreiða þau mál. Við erum hér með annað mál á dagskrá sem varðar fríverslunarsamning Íslands og Indlands og boðaðir hafa verið á þingmálaskrá ríkisstjórnar a.m.k. tveir aðrir fríverslunarsamningar, annars vegar við Taíland og hins vegar við Úkraínu, sem munu koma til umræðu vonandi síðar á þessu þingi. En ég kem hingað fyrst og fremst til að fagna þeirri samstöðu, pólitísku samstöðu, sem virðist ríkja í hv. utanríkismálanefnd og hér á Alþingi um fríverslunarmál og ég þakka sömuleiðis fyrir umræðuna.