156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Indlands.

91. mál
[14:21]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég bara fagna þessu og tel það mjög mikilvægt að við höfum náð þessum fríverslunarsamningi. Það var stórt skref þegar okkar ráðherrar fóru þarna út í þessum erindagjörðum. Við höfum séð það að EFTA hefur nýst okkur mjög vel við það einmitt að ná fríverslunarsamningum. Mér finnst það áhugavert í ljósi þeirrar umræðu sem á sér stað þessi misserin þar sem verið er að hóta tollastríðum og ýmis stór ríki virðast vera að fara í þveröfuga átt við það sem sú sem hér stendur aðhyllist, sem er einmitt fríverslun. Ég held að fríverslunarsamningar séu mjög mikilvæg leið til að stuðla að samvinnu ríkja þannig að ég held að þetta verði stórt og gott skref. Þá vil ég líka minna á það að Evrópusambandið hefur ekki enn gert fríverslunarsamning við Indland. Ég veit að Ursula von der Leyen er þar úti núna eða á leiðinni út og vill einmitt auka samstarf við Indland. En mér finnst þetta líka sýna það hversu öflug við erum einmitt innan EFTA-samstarfsins og hvernig þessi ríki hafa á stundum náð að gera töluvert betur en Evrópusambandið.