156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

stjórn fiskveiða.

159. mál
[14:32]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 165, 195. mál, en um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, um gagnsæi og tengda aðila. Frumvarp þetta er eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar; að gera auknar kröfur um gagnsæi í sjávarútvegi og að skerpt sé á skilgreiningu tengdra aðila.

Kvótakerfið okkar hefur lengi sett svip sinn á íslenska stjórnmála- og samfélagsumræðu. Ein af uppsprettum tortryggni almennings í málinu er vantraust gagnvart eignarhaldi og eignatengslum fyrirtækja í greininni. Þegar almenningur hefur ekki aðgang að skýrum og aðgengilegum upplýsingum þá kvikna grunsemdir og hætt er við að traust á viðkomandi kerfi veikist. Til þess að draga úr slíkri tortryggni og styrkja trú almennings á atvinnugreininni mikilvægu er að mati stjórnvalda nauðsynlegt að auka gagnsæið og tryggja með ríkum hætti að reglum sé fylgt.

Samkvæmt þessu nýja frumvarpi verða viðskipti með aflaheimildir héðan í frá tilkynningarskyld til Fiskistofu sem mun birta þær upplýsingar líkt og gert er með viðskipti í kauphöll. Með þessu móti verður verðmæti aflaheimilda og breytingar þar á uppi á borðum. Þá mun Fiskistofa einnig fá skýrari eftirlitsúrræði til að tryggja ákvæði um hámarksaflahlutdeild einstakra útgerða. Auknar kröfur verða lagðar á stærri félög og verður hluti þessara upplýsinga birtur í þágu gagnsæis. Við ætlum að skýra og skerpa á því hverjir teljast tengdir aðilar og samræma skilgreiningu á hugtakinu „yfirráð" þannig að það hafi sömu merkingu og það gerir í dag samkvæmt samkeppnislögum. Þá verður tilgreint að systkini og sambúðarfólk verði tengdir aðilar en núgildandi lög telja þau ótengd. Þau nýmæli fylgjast með þessum lögum að eignarhald útgerða í öðrum útgerðarfélögum sem nemur yfir 20% mun í framtíðinni hafa áhrif á hámarksaflahlutdeild viðkomandi útgerða. Markmið þessara breytinga er einnig að bæta úr vanköntum við framkvæmd gildandi ákvæða um hámarksaflahlutdeild sem bent hefur verið á í opinberum skýrslum í gegnum tíðina að þurfi að bregðast við. Tilgangur frumvarpsins er þó ekki að hrófla við undirstöðuatriðum í gildandi ákvæðum um hámarksaflahlutdeild skv. 13. og 14. gr. laga um stjórn fiskveiða né verða lagðar til breytingar á hámarksaflahlutdeild einstakra tegunda heldur eru hér lagðar til úrbætur á afmörkuðum atriðum í ákvæðunum sem eru til þess fallnar að styrkja þau og framkvæmd þeirra í þeim tilgangi að auka gagnsæi í sjávarútvegi.

Ég ætla að fara yfir helstu breytingar frumvarpsins. Í fyrsta lagi er lagt til að hugtakið yfirráð verði skilgreint með sama hætti og gert er í 17. gr. samkeppnislaga, nr. 44/2005. Yfirráð samkvæmt samkeppnislögum er þegar aðili er í aðstöðu til að hafa beint eða óbeint afgerandi áhrif á mikilvægar ákvarðanir fyrirtækis af viðskiptalegum toga, m.a. um stefnu þess og áætlanir. Yfirráð geta ýmist verið á hendi eins aðila eða saman á hendi fleiri aðila, þ.e. sameiginleg yfirráð með innbyrðis tengslum milli aðila eins og t.d. þegar um er að ræða fjölskyldutengsl. Á sviði samkeppnisréttar hafa mótast ítarleg viðmið um það hvað felst í yfirráðum og þar sem ákvæði samkeppnislaga gilda um alla atvinnustarfsemi er hugtakið vel þekkt. Með skýrari skilgreiningu hugtaksins yfirráð munu ákvæði laga um stjórn fiskveiða m.a. ná betur utan um tilvik þar sem yfirráð eru á sameiginlega á hendi fleiri en eins aðila. Með því að byggja á skilgreiningu samkeppnisréttar verður einnig unnt að leita fanga í umfangsmikilli réttarframkvæmd á sviði samkeppnisréttar við mat á því hvenær yfirráð teljast hafa stofnast og aðilar teljast þannig tengdir. Tillagan tekur einnig mið af því að ákvæði um hámarksaflahlutdeild eiga sem slík rætur sínar að rekja til sjónarmiða um verndun samkeppni og nýliðunar.

Í öðru lagi er í frumvarpi þessu lagt til að einstaklingar í nánum fjölskyldutengslum verði skilgreindir sem tengdir aðilar vegna hámarksaflahlutdeildar. Það tekur til maka, sambúðarfólks og skyldmenna í beinan legg og fyrsta legg til hliðar. Jafnframt verði lögaðilar undir yfirráðum slíkra skyldmenna hvers um sig eða saman álitnir tengdir aðilar. Núgildandi ákvæði laga um stjórn fiskveiða um tengda aðila ná ekki yfir tengsl milli sambúðarfólks og systkina innbyrðis og því er lagt til að rýmka afmörkun fjölskyldutengsla. Þó gengur þessi tillaga í þessu frumvarpi sem ég mæli hér fyrir skemur en t.d. fjölskyldutengsl samkvæmt stjórnsýslulögum eða kosningalögum og hér er ekki gengið lengra en nauðsynlegt þykir í þágu settra markmiða. Tillagan byggir því á markmiðum um hámarksaflahlutdeild sem eru að koma í veg fyrir of mikla samþjöppun aflaheimilda á hendur fárra einstaklinga eða hópa, t.d. við kynslóðaskipti.

Á síðustu árum hafa verið lagðar fram ýmsar tillögur til að skýra betur hugtakið tengdir aðilar í lögum um stjórn fiskveiða. Þær tillögur hafa byggt á mun víðtækari skilgreiningu á tengdum aðilum og yfirráðum en hér er lagt til. Þannig hefur áður verið lagt til að aðilar teljist tengdir aðilar og verði þar álitnir ein heild með tilliti til aflahlutdeildar við það eitt að annar aðilinn eigi 25–33% eignarhlut í hinum, en þær tillögur hafa m.a. tekið mið af skilgreiningu yfirráða í löggjöf um fjármálamarkaði þar sem yfirráð eru jafnan skilgreind sem 30% eða meira af atkvæðisrétti í félagi. Ég nefni þetta sérstaklega til að árétta að sú útfærsla sem er lögð fram í þessu frumvarpi er því vægasta leiðin að settu marki um aukinn skýrleika og virkni ákvæða um tengda aðila. Var því við útfærslu tillögunnar gætt að meðalhófi og ekki gengið lengra en nauðsyn var talin bera til.

Í þriðja lagi er í frumvarpinu lögð til ný regla sem felur í sér að skilgreind eignatengsl milli útgerðaraðila, þrátt fyrir að vera ekki yfirráð, skuli hafa ákveðin áhrif til hækkunar á reiknaðri aflahlutdeild þess útgerðaraðila sem fer með eignarhlutinn. Þannig muni slík eignatengsl vigta upp í mörk hámarksaflahlutdeildar að ákveðnu marki. Hér er lagt til að miðað verði við eignatengsl sem nema 20% eða meira af atkvæðisrétti í lögaðila, enda felur slíkt í sér að eigandinn hafi veruleg áhrif á rekstrar- og fjármálastefnu lögaðila eins og það er skilgreint í ákvæðum laga um ársreikninga. Í núgildandi lögum geta útgerðaraðilar og tengdir aðilar í reynd átt 20–30% hlutdeild í ótakmörkuðum fjölda annarra útgerða án þess að það hafi áhrif á hámarksaflahlutdeild, þ.e. ef ekki er um raunveruleg yfirráð að ræða. Hefur Fiskistofu reynst erfitt að sanna gegn andmælum að um sé að ræða raunveruleg yfirráð í skilningi 2. töluliðar 4. mgr. 13. gr. gildandi laga um fiskveiðistjórn og skort heimild til að afla upplýsinga um yfirráð. Í ljósi þess að markmið ákvæða um hámarksaflahlutdeild er að sporna við samþjöppun aflaheimilda standa því fá rök fyrir því að slík eignatengsl falli alveg á milli skips og bryggju. Nýmæli þetta gengur þó skemur en gildir í ákvæðum annarra laga um tengda aðila vegna yfirráða og fjölskyldutengsla þar sem aflahlutdeildir slíkra aðila væru þá lagðar saman að fullu. Í frumvarpinu er því farin ákveðinn millivegur; að láta minni eignatengsl en yfirráð vigta að ákveðnu leyti. Að teknu tilliti til meðalhófs og þess að breytingar á eignatengslum kunni að vera íþyngjandi er í frumvarpinu lagt til að breyting þessi um eignatengsl sem nema 20% eða meira öðlist ekki gildi fyrr en 1. janúar árið 2027.

Ég nefni það hér að mögulega mætti veita aðilum aukinn aðlögunarfrest og fresta gildistökunni enn frekar og ég vísa því til hv. atvinnuveganefndar að skoða ef tilefni þykir til.

Í samráði um drög frumvarpsins komu fram ábendingar sem varða heildarkvóta laganna og að æskilegt væri að hámarksaflahlutdeild væri í einstökum tegundum í stað viðmiða um þorskígildistonn. Það er ekki markmið þessa frumvarps hér að mæla fyrir um breytingar á hámarksaflahlutdeild en ég hef skilning á því flækjustigi og þeim vanda sem getur skapast og eru þessar ábendingar þess vegna til skoðunar í ráðuneytinu og hvaða leiðir væri unnt að fara til að bregðast við og tryggja þann sveigjanleika sem atvinnugreinin kallar eftir.

En áfram með þetta frumvarp. Í fjórða lagi er lagt til að efla Fiskistofu í því hlutverki að hafa eftirlit með því að aflahlutdeildir fiskiskipa útgerðaraðila séu innan leyfilegra marka. Eru því lagðar til breytingar á ákvæði um upplýsingaskyldu til Fiskistofu að því er varðar eignarhald útgerðar og tengsl þeirra. Gagnsæi og yfirsýn varðandi eignarhald er forsenda þess að ákvæðum um hámarksaflahlutdeild verði framfylgt og eins og ég nefndi hér að framan er einnig lagt til það nýmæli að Fiskistofu séu veittar upplýsingar um viðskipti um aðilaskipti að aflahlutdeildum. Í frumvarpinu er því lagt til að aðilum verði skylt að láta Fiskistofu í té upplýsingar um viðskiptin eða annan grundvöll aðilaskipta. Það eru m.a. upplýsingar um hlutaðeigandi aðila og verð sem greitt er fyrir aflahlutdeild án tillits til þess í hvaða formi greiðslan er. Gert er ráð fyrir þróun upplýsingatækniumgjarðar sem tekur mið af upplýsingum úr ólíkum gerðum viðskipta svo þær upplýsingar verði samanburðarhæfar.

Með breytingum á ákvæðum laganna sem varða eftirlitshlutverk Fiskistofu er í frumvarpinu einnig verið að bregðast við athugasemdum sem komu fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu frá árinu 2018. Þar var m.a. bent á að Fiskistofa hafi ekki greinargóða yfirsýn yfir tengsl aðila í sjávarútvegi og hafi ekki kannað yfirráð tengdra aðila með reglubundnum og markvissum hætti.

Verði frumvarp þetta að lögum mun það styrkja framkvæmd ákvæða um hámarksaflahlutdeild í lögum um stjórn fiskveiða sem helgast af ríkum almannahagsmunum þegar kemur að ráðstöfun heimilda til að nýta nytjastofna og sameign íslensku þjóðarinnar. Gagnsæi er ein mikilvægasta burðarstoð heilbrigðs viðskipta- og efnahagslífs. Þegar upplýsingar eru uppi á borðum geta bæði fyrirtæki og almenningur treyst því að leikurinn sé jafn og leikreglur skýrar. Í sjávarútvegi sem er grundvallaratvinnugrein hér á Íslandi er sérstaklega mikilvægt að traust ríki gagnvart kerfinu enda byggir afkoma þúsunda landsmanna um land allt á nýtingu þessarar auðlindar. Með þeim breytingum sem hér eru kynntar viljum við tryggja að upplýsingar um handhafa aflaheimilda, viðskipti og eignatengsl séu aðgengilegar og auðskildari fyrir alla.

Þetta frumvarp er stórt framfaraskref í átt að meira gagnsæi í sjávarútvegi. Skýrari reglur, betra eftirlit og meira aðgengi almennings að upplýsingum eru hlutir sem munu draga staðreyndir fram í dagsljósið og vega þungt í því að draga úr vantrú og tortryggni gagnvart aðilum í sjávarútvegi. Um leið er stuðlað að aukinni samkeppni með jafnari aðgang fyrirtækja að mikilvægum upplýsingum. Stjórnvöld og atvinnugreinin þurfa að horfa til framtíðar og tryggja að auðlindin skili áfram verðmætum til landsmanna og á sanngjarnan og ábyrgan máta.

Að öðru leyti vísa ég til greinargerðar þeirra sem fylgir frumvarpinu.

Að lokinni þeirri umræðu sem hér á sér stað legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umræðu og hv. atvinnuveganefndar.