156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

stjórn fiskveiða.

159. mál
[15:21]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Árangur í íslenskum sjávarútvegi hefur náðst með tæknivæðingu, með því að við höfum verið frumkvöðlar í tæknivæðingu og uppbyggingu á því sviði á síðustu árum og áratugum og leiðandi í heiminum á mörgum sviðum. Það þarf ekki að gera lítið úr þeirri viðurkenningu sem íslenskt fiskveiðistjórnarkerfi nýtur víða um heim. Það má leggja út frá orðum hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar að hann horfi á þessa gömlu tíma í ákveðinni rómantík þegar jafnvel nokkur hundruð starfsmenn unnu störf sem í dag eru kannski unnin meira af tæknifólki, kannski 20 til 30 starfsmenn, 10% af þeim sem unnu áður, sem í dag vinna enn meiri afla á enn skemmri tíma en var. Auðvitað hefur þetta breyst og er lykillinn að því að við getum verið þjóð sem nýtir afla sinn með þeim hætti sem raun ber vitni. Meðal annars vegna samþættingar á veiðum og vinnslu fullnýtum við nánast allan bolfiskaflann. Við flytjum sáralítið út til vinnslu í öðrum löndum. Viljum við bera okkur saman við Noreg í þeim efnum þar sem ég held að yfir 70% af bolfiski séu flutt til Póllands, til Kína, frosið til frekari vinnslu og verðmætasköpunar? Nei, menn verða að hafa þetta í huga. En að auka frelsi og veiða meira — já, ég ætla ekki að gerast hér dómari í vísindunum, ég hef ekki þekkingu til þess en ég vil hlusta bæði á sjómenn og vísindamenn og reyna að ná einhverjum samhljómi í því. Við veiðum ekki meira nema við náum að byggja það upp og það eru margar aðstæður í hafinu sem eru krefjandi fyrir okkur og vísindin eru erfið. Það fer því ekki alveg saman hljóð og mynd í mínum huga þegar við segjum „auka frelsi og veiða bara meira“ án þess að gera nokkuð annað.