stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Þegar sá sem hér stendur, og reyndar virðulegur forseti líka, var að alast upp á Eskifirði þá man ég eftir því að í kringum 1990, 1991 voru um sex útgerðarfyrirtæki á Eskifirði, fimm eða sex, misstór. Allra stærst var náttúrlega Hraðfrystihús Eskifjarðar. Hraðfrystihús Eskifjarðar var á barmi gjaldþrots. Eitt af skipum félagsins fékk ekki haffærisskírteini og það voru ekki til peningar til að laga brúna. Þetta var staðan í íslenskum sjávarútvegi í kringum 1990. Þessi félög og þessi fyrirtæki sem þá voru í sjávarútvegi máttu ekki við neinum áföllum. Ég vil bara minna á það að síðasta gengisfellingin á Íslandi var árið 1993. Það er akkúrat á þessum tímapunkti, og svo kemur framsalið 1991, að sú hagræðing sem þurfti að eiga sér stað í greininni fer af stað. Við vorum með elsta flotann í Norður-Atlantshafi, hann var úr sér genginn og gamall. Við vorum með gömul frystihús og vorum komin langt á eftir. Með því að gefa greininni tækifæri á því að fyrirtækin gætu sameinast og stækkað þá bjuggum við til atvinnugrein sem er orðin leiðandi í heiminum í dag og er ekki á framfæri skattgreiðenda eins og gerist annars staðar í Evrópu og í heiminum, heldur er leiðandi þegar kemur að tækni og framförum.
Það er kannski ágætt að taka dæmi fyrir marga þingmenn sem hafa ekki starfað í sjávarútvegi. Ég man eftir því þegar ég var á loðnuvertíð og í loðnufrystingu árin 1995–1997. Kennaraverkfallið 18. febrúar 1995 kom eins og himnasending og maður gat farið heim á loðnuvertíð og náð sér í pening. Þá voru líklega 500–600 manns á Austfjörðum að frysta um 400 tonn á sólarhring. Núna, bara í uppsjávarfrystihúsi Eskju á Eskifirði, og svona eru þessi hús á þeim stöðum þar sem þau hafa verið reist, eru um 18 manns á vakt, svona 36 manns í allt, og í gegnum húsið fara 1.000 tonn. En hvert hafa störfin farið? Þau fóru frá því að vera þessi störf þar sem voru mörg hundruð manns í það að vera störf sem hönnuðu frystiskápana og vogirnar. Allt hugvitið sem var og er í þessum húsum er íslenskt hugvit. Þar höfum við náð að verða leiðandi á nokkrum áratugum, leiðandi þjóð.
Eitt langar mig að koma inn á varðandi þetta frumvarp áður en ég fjalla meira um það sem sagt hefur verið hér og tengist kannski líka frumvarpinu að hluta til. Við tölum um að eyða óvissunni og að það þurfi meiri skýrleika og gagnsæi. Ég veit ekki betur en að hægt sé að gúgla eignarhald á íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum með mjög einföldum hætti og það er ánægjuefni að nú eru alltaf fleiri og fleiri fyrirtæki að koma á markaðinn og þangað eru fagfjárfestar að leita, ekki síst lífeyrissjóðirnir sem eru alltaf að verða stærri og stærri. En við þekkjum það að ein helsta áskorun sjávarútvegsins hefur nú verið blessuð náttúran; aflabrestir og litlir kvótar. Það er náttúrlega sorglegt að koma t.d. á Austfirði og víðar, eins og í Vestmannaeyjum og annars staðar, og horfa á þessar stóru fjárfestingar standa hljóðar, verksmiðjurnar eru hljóðar og milljarðafjárfestingar í skipum liggja bundnar við kæja og tekjur af loðnuvertíðinni flæða og streyma ekki um samfélögin eins og þær ættu að gera.
Ekki nóg með það. Þegar maður hlustar á tvo hv. þingmenn sem hafa komið hér upp frá Flokki fólksins, hv. þm. Grétar Mar Jónsson og hv. þm. Sigurjón Þórðarson, þá veltir maður því fyrir sér: Ef þetta er umræðan um atvinnugreinina, ef þetta er umræðan sem fjárfestar, svo ég tali nú ekki um fjárfesta lífeyrissjóðanna, horfa á þá velta þeir því fyrir sér að pólitísk áhætta sé líklega orðin stærri áhættufaktor í því að kaupa í sjávarútvegsfyrirtækjum frekar en hvort það verði loðna eða ekki eða hvernig þorskkvótinn verði á næsta ári. Hér hefur verið farið með alveg ótrúlegar staðreyndavillur. Það er eiginlega ótrúlegt að sitja undir því að menn komi hér upp og séu bara með staðreyndavillur. Menn tala um gjafakvóta. Yfir 90% af kvótanum hafa verið keypt. Þegar kvótanum var upphaflega úthlutað var 54% úthlutað til bæjarútgerða; 54% af upphaflegum kvóta var úthlutað til bæjarútgerða. Menn tala hér um að allt eigi að fara á markað, það gæti verið stóra lausnin af því að verðin séu svo há á markaðnum. En þeir sem eru jafnvel bara búnir að taka einn áfanga í hagfræði átta sig á því að ef þú setur allan fiskinn á markað þá ertu ekki með sömu háu verð og á markaði í dag. Þá velti ég fyrir mér atvinnuöryggi landverkafólks í landi. Ef allir eru skyldaðir til að landa á markaði, verður þetta þá eins og í Ísbjarnarblús: „Það er enginn fiskur í dag, þið getið farið heim og slappað af,“ af því að menn voru ekki nógu snöggir að fara á markaðinn og tryggja fisk í vinnsluna? Þetta er allt einhvers konar nostalgía. Þetta er allt einhver nostalgía sem byggist á því þegar sjávarútvegurinn var í járnum, þegar aðlaga þurfti íslenskt efnahagslíf að gengi eða slæmu gengi sjávarútvegsins og almenningur tók á sig höggin í gegnum gengisfellingar og annað. Menn vilja hverfa aftur til þess tíma og standa hér og tala um það í alvörunni. Þetta er í rauninni alveg ótrúlegt.
Að lokum, af því að menn velta fyrir sér hver sé að tala um að þetta sé eitthvert fyrirmyndarkerfi, er ágætt að nefna að Cornell-háskóli í Bandaríkjunum, einn af virtustu háskólum Bandaríkjanna, einn fremsti háskólinn á sviði sjálfbærni og hefur hann sérstaklega tileinkað sér alls konar akademísk fræði sem snúa að því, hefur sent hingað sendinefndir og er búinn að setja mikinn pening í rannsóknir á íslenska fiskveiðistjórnarkerfinu. Cornell-háskóli trúir því að íslenska fiskveiðistjórnarkerfið geti orðið leiðarvísir fyrir aðrar fiskveiðiþjóðir, hvernig eigi að byggja upp fiskveiðistjórnarkerfi í heiminum. Við búum það vel, ólíkt því sem gerist annars staðar í kringum okkur þar sem ofveiði er gríðarlega mikil, eins og t.d. í Asíu, Afríku og annars staðar, að menn trúa því að þetta geti verið kerfi sem gæti orðið til fyrirmyndar fyrir aðrar þjóðir og það er eitt af því sem Cornell-háskóli vill leggja af mörkum til þeirrar umræðu.
Virðulegur forseti. Ég fagna því að við ræðum hér um sjávarútveg og tek undir með hv. þm. Jóni Gunnarssyni að það er ýmislegt sem þarf að ræða. En það er samt ekki hægt að bjóða upp á hvað sem er í ræðustól og ég held að við gerum þá lágmarkskröfu að menn færi orðræðuna frá árinu 1983 til dagsins í dag, 2025.