156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

stjórn fiskveiða.

159. mál
[15:54]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég tel nú ekki að ég hafi verið að barma mér mikið í þessari umræðu en það er leitt ef hv. þingmaður hefur skilið ræðu mína þannig að ég hafi verið að kvarta og kveina. Ég er einmitt að benda hv. þingmanni á það hvernig við getum nýtt þessa sameiginlegu auðlind. Þetta er ekkert eins og hv. þingmaður virðist halda, (Gripið fram í.) eitthvert einkamál hjá einstaka útgerðarmanni heldur verðum við að horfa til þess að þetta er sameiginleg auðlind þjóðarinnar. Hvernig eigum við að hafa verðlagningu á henni og hvernig eigum við að tryggja það að hún fari í vinnslu þar sem verðmætin verða hvað mest úr hráefninu? Við í Flokki fólksins viljum markaðslögmálin en Sjálfstæðisflokkurinn vill eitthvað annað. Hann vill hafa þau stundum og stundum ekki. Þegar sérhagsmununum hentar þá má kannski fara á markað en ef það hentar sérhagsmununum að fara bara með þetta inn í sína vinnslu á undirverði og geta þá greitt sjómönnunum eitthvert málamyndaverð og lægri hafnargjöld og allt það og taka þá mögulega hagnaðinn einhvers staðar annars staðar út í virðiskeðjunni, þá er það bara eitthvað sem er viðurkennt. Við teljum að það sé eðlilegra að markaðslögmálin séu einfaldlega látin gilda um þessa sameiginlegu auðlind þjóðarinnar þegar hún kemur á land. Það er sanngjarnt og við teljum að það sé rétta leiðin. Þannig að þegar menn eru að tala um óvissu þá held ég að óvissan fyrir þjóðina sé, og ég held að fólk eigi að hlusta á það, að Sjálfstæðisflokkurinn fái áfram að haga hlutunum með þeim hætti sem þeir hafa verið. Þessu þarf að breyta. Við þurfum að koma á meiri sanngirni og það er leiðin áfram.