156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

stjórn fiskveiða.

159. mál
[15:58]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Mér þykir rétt að koma upp öðru sinni til að fara örlítið yfir efnistök sem hafa komið fram í umræðu um þetta mál, sem ég ítreka að ég styð heils hugar. Komið hefur fram að þetta kerfi sé eitt það besta í heimi og hafi verið sett á af illri nauðsyn og allt það. Þá finnst mér rétt að fara örlítið yfir söguna. Þegar við öðluðumst yfirráð yfir efnahagslögsögunni var ætlunin að ná 500.000 tonna afla upp úr hafinu. Markmiðið var að draga úr sveiflunum en það er bara þannig í lífríkinu að það er eðlilegt að hafa sveiflur og menn komast ekkert hjá því. Hugmyndin á bak við þetta kerfi var að draga úr veiði á smáfiski þannig að fiskurinn myndi vaxa og stækka og menn myndu síðan hafa stóran hrygningarstofn og fá þá stöðugt mikla nýliðun. Þá var aflinn að meðaltali ríflega 400.000 tonn á ári. En fyrsta kastið gekk illa að halda aftur af flotanum og menn veiddu talsvert umfram ráðgjöfina. Það var m.a. vegna ágætra sjávarútvegsráðherra á borð við Matthías Bjarnason sem fór svona hæfilega eftir ráðgjöfinni. Það sem gerðist var að ráðgjöf næstu ára, þegar veitt var umfram, elti miklu frekar umframveiðina en hitt. Það sem menn hafa talað hér um, að hlutirnir hafi orðið betri með framsalinu, er ekki alveg sannleikanum samkvæmt, því að samfara því upp úr tíunda áratugnum urðu aðrar breytingar. Það urðu aðrar breytingar en bara framsalið. Þá gerðist það nefnilega, frú forseti, að farið var nákvæmlega eftir ráðgjöfinni, nánast upp á gramm. Leiddi það til meiri veiði? Nei, það leiddi til þeirrar stöðu sem við erum í núna, þ.e. að við erum að veiða nánast helminginn af því sem við veiddum áður. Þegar menn drógu úr veiðum þá dró úr vexti og nýliðun minnkaði. Tal um það að þetta hafi verið einhver bjargvættur og það hafi orðið einhver hagræðing — alls ekki. Fyrir okkur sem búum á landsbyggðinni og fylgdumst með hverju þorpinu á fætur öðru þar sem lögðust niður fiskvinnslur — það var ekki einungis framsalið heldur drógust veiðiheimildirnar saman. Það voru starfandi þó nokkrar vinnslur á Skagaströnd og á annan tug á Siglufirði og Ólafsfirði. Allt þetta dróst saman í nafni ráðgjafar sem síðan skilaði ekki meiri afla síðar eins og gert var ráð fyrir.

Þetta er niðurstaðan af þeirri tilraun sem fór fram. Í kjölfarið var ákveðin umræða upp úr aldamótum um það að þetta kerfi væri ekki að ganga upp vegna þess að niðurskurðurinn skilaði ekki meiri afla síðar. Haldið er áfram og aflareglan minnkuð enn meira, m.a. undir útreikningum og forsendum þess ágæta prófessors sem hefur verið nefndur fyrr í umræðunni. Farið var alveg niður í 22% en ákveðið að gera aðeins betur og veiða aðeins 20% af veiðistofni. Leiddi það til aukins afla? Ekki er það svo, því að staðan árið 2025 er einfaldlega sú að við erum að veiða 122.000 tonnum minna en við gerðum fyrir 100 árum og helmingi minna en við vorum að veiða áður en var farið í þetta kerfi. Að heyra ábyrga hv. þingmenn, jafnvel forystumenn í stærstu stjórnmálaflokkunum tala um þetta kerfi eins og það megi ekki endurskoða það er alveg stórundarlegt. Þetta kerfi er einfaldlega ávísun á áhættu, að það sé enginn fyrirsjáanleiki. Það birtist m.a. nú í loðnuveiðunum sem urðu varla nokkrar á þessari vertíð.