156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

stjórn fiskveiða.

159. mál
[16:03]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Flf):

Hæstv. forseti. Fiskurinn í sjónum er sameign þjóðarinnar. Þjóðin þarf að fá fullan arð af sjávarauðlindinni. Auðvitað þurfum við að endurskoða þetta árangursleysi sem hefur verið hjá Hafrannsóknastofnun í 40 ár. Við höfum ekki náð að byggja upp neina fiskstofna. Við erum búnir að banna lúðuveiðar núna. Við erum búnir að banna humarveiðar núna. Við erum að veiða sáralitla rækju. Við erum ekki að veiða loðnu núna. Við náðum ekki að veiða ufsakvótann á síðasta fiskveiðiári. Við náðum ekki að veiða ýmsar tegundir. Við erum í vandræðum með vinnubrögð Hafrannsóknastofnunar líka og raunverulega þyrfti að fá aðila til að taka út Hafrannsóknastofnun og vinnubrögð hennar síðustu 40 árin þannig að gerð væri úttekt á því hvað hefur klikkað hjá Hafrannsóknastofnun allan þennan tíma, hvað er að. Eru þeir að vaða í villu og reyk? Er það það sem við stöndum frammi fyrir?

Varðandi afstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokksins við markaðslögmálinu um að setja allan fiskinn á fiskmarkað, það er stórfurðulegt og ég get ekki ímyndað mér — vegna þess að það vill svo til að ég þekki marga Sjálfstæðismenn sem eru miklir talsmenn þess að allur fiskur fari inn á fiskmarkað. Þeir eiga ábyggilega erfitt með að skilja afstöðu þingmanna flokksins, ég tala nú ekki um forystumanna flokksins, sem vilja ekki að allur fiskur fari á fiskmarkað. Þeir tala um frelsi útgerðarmannsins. En það er nú bara þannig að útgerðarmaðurinn er bara partur af þessu þó að hann sé handhafi veiðiheimildanna og geti leigt þar á hverju ári frá sér fyrir 500 kr. kílóið innan ársins og lætur viðkomandi leigjanda borga ekki bara 500 kr. heldur líka það sem hann þurfti að borga til ríkisins, 28 kr. í viðbót. Þetta sjá allir að gengur ekki upp. Af hverju leigir ríkið þetta ekki frá sér sjálft? Ríkissjóður, sem vantar peninga í ýmis verkefni og er rekinn með halla. Af hverju sækjum við ekki þessa aura, ríkissjóður sjálfur, í staðinn fyrir að láta einhverja lukkuriddara fá þessar veiðiheimildir til að geta braskað með þær? Og ef útgerðarmaður ákveður að hætta þá getur hann selt 1 tonn af þorski frá sér fyrir 7,5 milljónir. Og svo segja menn að gjafakvótinn þýði ekkert, það séu svo margir nýir aðilar komnir í útgerð. Auðvitað koma einhverjir nýir aðilar inn í útgerð en þeir voru kannski að kaupa þetta fyrir 150 eða 200 kr. kílóið í upphafi og tonnið er komið í 7,5 milljónir króna. Þetta er auðvitað eitthvað sem ekki gengur upp og við verðum að berjast á móti þessu og tryggja það að íslenska þjóðin fái arð af sinni auðlind. Auðvitað væri best að gjörbreyta þessu kerfi kannski á fjórum árum og taka upp sóknarmark, hafa daga eins og Færeyingarnir gerðu. Þeir tóku upp kerfi eins og við en hættu því eftir eitt og hálft ár af því að þeir sögðust ekki vilja henda fiski í sjóinn.