156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

borgarstefna.

158. mál
[16:36]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina á þessari borgarstefnu sem ég fagna mjög. Hún hefur, líkt og hæstv. ráðherra fór yfir í máli sínu, tekið tíma og var í vinnslu hjá fyrri ríkisstjórn og fyrrverandi innviðaráðherra, formanni Framsóknarflokksins, Sigurði Inga Jóhannssyni. Þetta er rosalega mikilvægt og ég fagna því að þetta sé komið fram hér. Auk þess sem þetta hefur verið unnið af fyrri ríkisstjórn þá hefur þetta komið mikið til tals í bæjarstjórn Akureyrar á undanförnum árum, þar sem þetta var ein af áherslunum, og eins tók SSNE þetta upp á sínum tíma og er þetta eitt af markmiðunum í stefnunni þar. Það er því samhljómur á svæðinu um það að gera Akureyri að svæðisborg. En það er margt sem kemur þarna fram og þetta er auðvitað bara markmið, þetta er tillaga um viss atriði.

Mig langar aðeins að velta hér upp spurningum til hæstv. ráðherra: Til hvaða aðgerða hyggjast stjórnvöld grípa til að tryggja að Akureyri verði raunveruleg svæðisborg sem þjónar þá Norður- og Austurlandi? Hver er framtíðarsýn stjórnvalda um bættar samgöngur, því að hér er einmitt samgönguráðherra, milli Akureyrar og annarra landshluta og þá er bæði verið að horfa til samgangna á lofti og á landi? Svo hefur uppbygging orku- og fjarskiptainnviða á Norðurlandi mikið verið í umræðunni, bæði varðandi samkeppnishæfni og fleira, af því að þetta á að tengja saman atvinnusvæði og byggðasvæði. Hvernig sér hæstv. ráðherra þessa þætti fyrir sér? Ég spyr líka hvort eitthvað af þessu muni endurspeglast í samgönguáætlun, sem hann ætlar að leggja fram með haustinu.