borgarstefna.
Virðulegur forseti. Hér er um stefnumörkun að ræða fremur en aðgerðaáætlun, sem aðrar áætlanir taka til. Ég vona að ég geti svarað hv. þingmanni hvað það varðar að inntak borgarstefnu verður þróað á þessum samstarfsvettvangi. Mér sem ráðherra verður falið að koma á þessum formlega samstarfsvettvangi og þar verður inntak borgarstefnu þróað. Þær áherslur sem settar eru fram leiði svo til beinna skilgreindra aðgerða. Þetta er ólíkt öðrum aðgerðaáætlunum sem hér hafa komið til umfjöllunar, eins og bókmenntastefnu, aðgerðaáætlun fyrir hinsegin fólk o.fl. Þar eru skilgreindar aðgerðir, það er ekki í þessari stefnu. Þetta er stefnumörkunin. Aðgerðaáætlunin eða aðgerðirnar verða síðan skilgreindar á samstarfsvettvanginum. Þetta er öðruvísi plagg hvað það varðar, enda heitir þetta borgarstefna en ekki aðgerðaáætlun. Ef svo væri væri það nafn notað. Þetta er til að skapa umgjörðina, rammann og samstarfsvettvanginn. Lykilviðfangsefnin sem fjallað er um í II. kafla eru grundvöllurinn sem á að vinna að, þessi fimm lykilviðfangsefni sem eru algjörlega kristaltær: Atvinnulífið, fjárfestingar og nýsköpun, alþjóðleg samkeppnishæfni, innviðir og umhverfi, heilbrigðis- og félagsmál, menntun og menning. Þetta tengist allt saman, t.d. hvað varðar alþjóðlega samkeppni. Við verðum að hafa gott heilbrigðiskerfi, verðum að hafa leikskóla fyrir fólkið sem kemur hingað og gott skólakerfi, verðum að hafa góða innviði, góða vegi. Það eykur hagkvæmni og framleiðni í samfélaginu og stuðlar að því að við séum samkeppnishæf alþjóðlega. Svo hvað fjárfestingarnar varðar, að þær komi inn á svæði sem standast allar kröfur miðað við önnur ríki, og síðan að sjálfsögðu menning og menntun. Þetta tengist því allt saman. Ég vona að ég hafi svarað hv. þingmanni.
(BHar: Viltu segja frá jöfnunarsjóðsfrumvarpinu?) Já, við erum að skoða jöfnunarsjóðsfrumvarpið núna. Það fer vonandi til ríkisstjórnar í lok næstu viku og svo mun ég mæla fyrir því sem allra fyrst, (Forseti hringir.) en ég sé ekki tengingu hér við það. (Forseti hringir.) Það er ekki þjónustuhlutverk sveitarfélaga sem hér er undir.
(Forseti (KGH): Ég vil biðja hv. ræðumenn að virða tímann sem mér sýnist oft og tíðum vera úr lagi genginn.)