borgarstefna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrra andsvarið. Þetta var nákvæmlega það sem ég spurði að strax: Hvað með önnur svæði? Hvað með aðra höfuðstaði í landinu, önnur þéttbýlissvæði? Af hverju eru þau ekki þarna inni? Ég vildi helst breyta þessu öllu saman, að þetta tæki líka til aðstæðna í höfuðstað og svoleiðis. En hérna erum við eingöngu að fjalla um borgarsvæðin og það er mjög eðlilegt að spyrja þessarar spurningar. Málið er að þetta er ein af aðgerðunum í byggðaáætluninni sem fjallar um borgarsvæði og það nær til þessara svæða, frá Hvítá til Hvítár og svo frá Akureyri austur til Húsavíkur og til Mývatns. Þéttbýlisstaðir eins og Ísafjörður, Sauðárkrókur og Egilsstaðir eru einfaldlega ekki á sama skala eða af sömu stærðargráðu hvað þetta varðar, að geta skilgreinst sem borgarsvæði. Ég myndi gjarnan vilja hafa aðgerðaáætlun fyrir þau sérstaklega. En það var ákveðið að gera þetta svona af því að höfuðborgin — og líka það að við erum með höfuðborgina sem er svo gríðarlega stór í hlutfalli við allt landið að það væri erfitt að hafa stefnu sem næði til þessara minni staða sem ég nefndi. Það er hins vegar hægt ef við tækjum Reykjavík út úr og svo tökum við Akureyri, það er að vissulega gríðarlega mikill og stór munur þar á milli varðandi stærð en við erum að reyna að lyfta og ætlum að lyfta Akureyri sem borgarsvæði og efla Akureyri og Akureyrarsvæðið sem, við getum sagt mótvægi við höfuðborgina. Það verða þá tveir punktar sem við ætlum að efla eða tvö þéttbýlissvæði sem við ætlum að efla. En það felst alla vega ekki í aðgerðaáætluninni hvað þessi C.4.-aðgerð — hún nær ekki til þessara staða. Þetta er byggðaáætlun sem Alþingi samþykkti þar sem kveðið er á um það að stærstu þéttbýlissvæðin verði efld og samkeppni þeirra og hlutverk í byggðaþróun landsins styrkt. Það eru þessi tvö þéttbýlissvæði.