156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

borgarstefna.

158. mál
[16:56]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið og legg áherslu á það að þrátt fyrir að við séum að tala þarna um tvö borgarsvæði, annars vegar höfuðborgarsvæðið og hins vegar Akureyrarsvæðið, eins og talað er um þarna, er orðið gríðarlega mikilvægt að þessi tvö svæði skilji og átti sig á hlutverkum sínum gagnvart þá Vestfjörðum og Austurlandi og ég efast ekkert um að svo sé. Mig langar að varpa hérna fram í seinna skiptið annarri spurningu. Það er talað mikið um samráðsvettvang og samstarf en ég sé hvergi minnst á landshlutasamtök í þessu samstarfi þannig að það væri gott að heyra frá hæstv. ráðherra hvort landshlutasamtökin séu hugsuð sérstaklega inni í þessu samstarfi.